[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Skipholt, 105 Reykjavík Skipholt Reykjavík
Kársnesbraut, 200 Kópavogur Kársnesbraut Kópavogur
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Ástún, 200 Kópavogur Ástún Kópavogur
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Sólbaðsstofa, 110 Reykjavík Sólbaðsstofa Reykjavík
Síldarvinnslan Norðfirði

Síldarvinnslan Norðfirði

Innlent | Morgunblaðið | 3.12.2008 | 05:30

Freista þess að finna ósýkta síld

Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is

Útgerðarmenn réðu ráðum sínum á símafundum í gær til að fara yfir þá alvarlegu stöðu sem upp er komin vegna sýkingar í íslensku sumargotsíldinni. Meðan óvissa ríkir um síldveiðarnar munu útgerðarmenn ræða stöðuna á daglegum símafundum.

Einhverjir hyggja á leit að síld á öðrum miðum en skipin hafa verið að veiðum á undanfarið til að freista þess að að finna ósýkta síld. Álsey frá Vestmannaeyjum hóf leit að síld í gær og líklegt er að Börkur frá Neskaupstað og Jóna Eðvalds frá Hornafirði haldi til leitar í dag.

Síldin sem er með sýkingu er ekki verkuð til manneldis og er mikill munur á verðmætum eftir því hvort síldin er fryst eða fer í bræðslu. Gróft reiknað gæti munur á útflutningsverðmæti bræðslusíldar verið 45-50 þúsund krónur fyrir tonnið miðað við 90-100 þúsund krónur fyrir frysta síld.

Síldarmarkaðir hafa verið góðir í haust, auk þess sem gengið hefur verið útflytjendum hagstætt. Erfiðleikar hafa hins vegar verið með greiðslu á gjaldeyri til landsins.

Einhverjir kaupendur á frystri síld munu hafa lýst áhyggjum vegna síldar sem var verkuð um það leyti sem sýkingin kom upp. Ekki er talið að viðskipti gangi til baka, en Ægir Páll Friðbertsson, framkvæmdastjóri Ísfélagsins, sagði að ekki væri útilokað að menn þyrftu að slá eitthvað af umsömdu verði vegna útlitsgalla. Náið er fylgst með gæðum framleiðslunnar.

Mikil mannvirki eru á Austfjörðum og í Vestmannaeyjum til vinnslu á síld og tugir manna hafa unnið við síldarverkunina. Flest fyrirtækin hafa þó talsverðan sveigjanleika í fiskvinnslu. „Stærsta spurningin í mínum huga er hvernig stofninum reiðir af og hvernig hann verður á næstu árum,“ sagði Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað í gær. „Í mínum huga snýst þetta ekki um skammtímahagsmuni okkar þessa dagana heldur framtíðina.“

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær