Rúnar Júlíusson í myndum">

Rúnar Júlíusson látinn

mbl.is/Kristinn

Guðmundur Rúnar Júlíusson tónlistarmaður og útgefandi lést í nótt af völdum hjartaáfalls.

Útgáfufyrirtæki hans Geimsteinn hélt árlega útgáfukynningu sína á veitingastaðnum Ránni í gærkvöld þar sem listafólk útgáfunnar var saman komið. Rúnar var að fara á svið til að syngja og var að teygja sig eftir gítarnum þegar hann kenndi sér meins. Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem hann andaðist.

Guðmundur Rúnar Júlíusson fæddist í Keflavík 13. apríl 1945, sonur Júlíusar Eggertssonar múrarameistara og Guðrúnar Stefánsdóttur Bergmann. Rúnar varð kunnur knattspyrnumaður á unglingsárum sínum og lék með Keflavíkurliðinu þar til hann sneri sér að tónlist.

Rúnar var bassaleikari í Hljómum sem varð landsþekkt eftir að sveitin kom fram í fyrsta sinn 5. október 1963 í Krossinum í Innri Njarðvík. Rúnar varð fljótlega vinsæll söngvari og tónlistarmaður sem vakti aðdáun hvar sem hann kom. Hann starfaði í Hljómum þar til hann stofnaði Trúbrot með félögum sínum vorið 1969. Þegar Trúbrot hætti 1973 voru Hljómar endurreistir og stuttu seinna kom Lónlí blú bojs fram á sjónarsviðið. Rúnar og Gunnar Þórðarson stofnuðu Hljóma útgáfuna um þessar mundir sem gaf m.a. út plötur Lónlí Blú Bojs.

Rúnar og María Baldursdóttir lífstíðarförunautur hans stofnuðu hljómplötuútgáfuna Geimstein árið 1976, sem er í dag elsta hljómplötuútgáfa landsins með samfellda sögu.

Rúnar gerði nokkrar sólóplötur og starfrækti næstu árin hljómsveitina Geimstein. Hann stofnaði Áhöfnina á Halastjörnunni með Gylfa Ægissyni 1980 en starfrækti lengst af Hljómsveit Rúnars Júlíussonar, sem hét undir það síðasta Rokksveit Rúnars Júlíussonar. Hann stofnaði GCD ásamt Bubba Morthens 1991. Sú hljómsveit gaf út þrjár plötur sem nutu mjög mikilla vinsælda.

Árið 1982 settu Rúnar og María á laggirnar hljóðver á heimili sínu Skólavegi 12 í Keflavík. Það nefndist í daglegu tali Upptökuheimilið Geimsteinn. Rúnar starfrækti hljóðverið og útgáfufyrirtækið til hinsta dags. Hann gaf út um 250 hljómplötur með fjölda listamanna. Þar á meðal má nefna hljómsveitina Geimstein, Áhöfnina á Halastjörnunni, Maríu Baldursdóttur, Bjartmar Guðlaugsson, Þóri Baldursson, Deep Jimi and the Zep Creams, Hjálma og Baggalút. Fyrir fáeinum dögum kom út þriggja platna safnútgáfan Söngvar um lífið 1966-2008 þar sem Rúnar flytur 72 þekktustu lögin frá ferlinum.

Rúnar var einn dáðasti rokkari landsins og kom ævisaga hans Hr. rokk út 2005, sem Ásgeir Tómasson skrásetti.

Rúnar var virkur í tónlist fram á síðasta dag og ekki eru nema nokkrir dagar síðan hann sendi frá sér þrefaldan safndisk með yfirliti yfir ferilinn þar sem finna má upptökur allt frá 1966 fram til dagsins í dag. Í viðtali við Rúnar af því tilefni sem birtist í Morgunblaðinu 29. nóvember sl. sagði hann að frumkrafturinn í rokkinu hafi hrifið sig alla tíð og þó sér hafi þótt tímabært að staldra aðeins við, líta yfir farinn veg og sjá hvað hann hafi verið að gösla sé hann þó ekki á því að kveðja tónlistina: "Á meðan það eru frjókorn að einhverju nýju í kollinum þá heldur maður áfram."

Rúnar Júlíusson lætur eftir sig eiginkonuna Maríu Baldursdóttur, synina Baldur og Júlíus og 6 barnabörn.

Hljómar leika fyrir vistmenn á Grund árið 1964.
Hljómar leika fyrir vistmenn á Grund árið 1964. mbl.is/Ólafur K. Magnússon
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert