[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 17.3.10
5 6 36 37 38 43
28 41   39
Jóker
5 1 5 1 4  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Vættaborgir, 112 Reykjavík Vættaborgir Reykjavík
Vættaborgir, 112 Reykjavík Vættaborgir Reykjavík
Barónsstígur, 101 Reykjavík Barónsstígur Reykjavík
Fagribær, 110 Reykjavík Fagribær Reykjavík
Kjarrmóar, 210 Garðabær Kjarrmóar Garðabær
Þingvallavatn-lóð, 801 Selfoss (dreifbýli) Þingvallavatn-lóð Selfoss (dreifbýli)
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Eikardalur, 260 Njarðvík Eikardalur Njarðvík
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Stórikriki, 270 Mosfellsbær Stórikriki Mosfellsbær
Skrifað var undir samninginn í Húsi atvinnulífsins síðdegis í gær.

Skrifað var undir samninginn í Húsi atvinnulífsins síðdegis í gær.

Innlent | mbl.is | 6.12.2008 | 08:41

Bankamenn sömdu í gær

Laun starfsmanna fjármálafyrirtækja hækka um 20.500 krónur á mánuði frá 1. nóvember, samkvæmt kjarasamningi sem Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja og Samtök atvinnulífsins undirrituðu í gær. Laun hækka að auki um 14.000 krónur 1. janúar 2010.

Samningar SSF hafa verið lausir frá 1. október síðastliðnum en nýr samningur gildir til ársloka 2010.

Auk krónutöluhækkana við undirritun og í ársbyrjun 2010 hækkar orlofsframlag um 3,25% við gildistöku og um 2,5% 1. júlí 2009. Þá öðlast starfsmenn lengri orlofsrétt, þeir sem starfað hafa í 5 ár fá 27 daga og þeir sem hafa starfað í 10 ár, fá 30 daga orlofsrétt.

Starfsmenn með 0 til 3 ára starfsreynslu fá 2% viðbótarframlag af heildarlaunum í lífeyrissjóð en eftir þriggja ára starfsreynslu greiðir vinnuveitandi 7% viðbótarframlag.

Framlag í Menntunarsjóð SSF hækkar í 0,20%, starfsmenn fá 12 daga vegna veikinda barna í stað 10 áður og frá áramótum greiðir vinnuveitandi 0,13% framlag í endurhæfingarsjóð.

Í samningnum eru ákvæði um endurskoðun vegna verðlagsþróunar. Komi til þess að nefnd sem fjallar um forsendur kjarasamninga á almennum vinnumarkaði nái samkomulagi um breytingu á samningum, gildir sambærileg breyting um kjarasamning SSF og SA.

Atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna um kjarasamninginn verður rafræn og fer fram í næstu viku.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær