Slasaðist í ísklifri

Súlur, björgunarsveitin á Akureyri, sótti í dag mann sem fór úr axlarlið þegar hann var á ísklifurnámskeiði við Einhamar í Hörgárdal. Um 15 björgunarsveitarmenn fóru á staðinn og var notuð dráttarvél til að koma manninum yfir mestu ófærurnar og á sem var á leiðinni.

Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg gekk greiðlega að koma manninum niður og í sjúkrabíl sem flutti hann á sjúkrahús á Akureyri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert