„Eigum ekki að óttast þjóðina“
Bloggað um fréttina
-
Jakobína Ingunn ÓlafsdóttirAlmenningur er reiður
-
Rúnar Þór ÞórarinssonAlveg kolvitlaus þessi fyrirsögn
-
SkazSammála honum en vil hann ekki aftur á þing.
-
Jón Ármann SteinssonNýtt Ísland - eða bara andlitslyftingu?
-
Sigríður Laufey EinarsdóttirFundur hjá Samfylkingu - lýðskrum?
-
Heimir L FjeldstedAð sparka í liggjandi mann
-
Rúnar Már BragasonHversu mikið er hugsað um vilja fólksins?
-
Hallgrímur EgilssonNEI TAKK!!! Engar kosningar
-
Sigurður Bogi SævarssonLitli karlinn
-
Úlfar Bjarki Jóhannsson"People should not be afraid of their governments.
-
Magnús Helgi BjörgvinssonSamfylking þarf einhvern til að leysa Ingibjörgu
„Eins og allir vita þá er staðan grafalvarleg. Það skynja allir reiði almennings og vita að hún mun bara magnast þar til við tökum það skref að boða til kosninga, þar til við gefum þjóðinni von og trú um að endurreisnin sé möguleg,“ sagði Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, á opnum fundi Samfylkingarinnar í Þjóðleikhúskjallaranum.
„Við sem sitjum á þingi eigum ekki að óttast eigin þjóð. Kosningar er það sem fólkið vill fá og kosningar er það sem við skulum fá.“
„Ísland gekk í gegnum kerfishrun og ef kerfishrun kallar ekki á kosningar þá veit ég ekki hvað gerir það. Fólk þarf að hafa trú á stjórnmálamönnum til þes að endurreisn sé möguleg. Við þurfum kosningar. Við þurfum að eiga samtal við samstarfsflokkinn um kosningar. Ef það gengur ekki þá horfum við annað. Verkefnin eru ærin og það skiptir máli að uppbggingin sé á forsendum Jafnaðarmanna,“ sagði Ágúst Ólafur.
Sagðist hann vonast til þess að Samfylkingin gæti leitt uppbygginguna sem framundan væri. „Við sem sitjum á þingi eigum ekki að óttast eigin þjóð. Kosningar er það sem fólkið vill fá og kosningar er það sem við skulum fá.“
Til baka








Senda inn efni




