Ís brotnaði undan hestum
Bloggað um fréttina
-
Guðrún María Óskarsdóttir.Hvað næst ?
-
Halla RutÓtrúlegt ábyrgðarleysi
-
Guðrún Emilía GuðnadóttirGlannaskapur.
-
Jón SnæbjörnssonAnsk fíflagangur
-
Stefán GíslasonÍsinn brast
Ísinn á Reykjavíkurtjörn brotnaði undan hestum, sem tóku þátt í reiðsýningu þar í dag. Allir hestarnir eru nú komnir upp úr vökinni. Ekki er vitað til að knapa og hesta hafi sakað.
Sýningin var hluti af kynningu á Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum en eftir blaðamannafund átti að fara fram reiðsýning á Tjörninni. Tóku hestar og knapar þátt í henni. Allir hestarnir lentu í vatninu en einum tókst fljótlega að komast upp úr.
Margmenni tók þátt í björgun hestanna og voru m.a. notuð bönd til að draga þá upp. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út en hestarnir voru komnir á þurrt áður en það kom á staðinn.
Til baka








Senda inn efni



