FME afturkallaði starfsleyfið
Þar sem eftirlaunasjóður starfsmanna Glitnis er ekki lengur baktryggður hefur Fjármálaeftirlitið ákveðið að taka starfsleyfið af honum. Í lögum um lífeyrissjóði þurfa í það minnsta 800 að greiða í sjóði en einungis 600 greiða í þennan. Það var í lagi samkvæmt lögum á meðan sjóðurinn var baktryggður, segir Friðbert Traustason, framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja.
Bréf um leyfissviptinguna barst sjóðnum í janúarlok. Sjóðnum er nú gert að semja við annan lífeyrissjóð um að yfirtaka eftirlaunagreiðslurnar. „En með því er bakábyrgðin farin.“
Þessir sex hundruð fyrrverandi og núverandi starfsmenn Glitnis eru meðal þeirra elstu innan fyrirtækisins. Efirlaun þeirra voru baktryggð sem þýðir að áunnin réttindi skertust ekki þó sjóðurinn næði ekki að ávaxta fé sitt fyrir skuldbindingunum. Bakábyrgð sjóðsins varð eftir í gamla Glitni við fall bankans.
Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.
Til baka







Senda inn efni



