Sögðu eitt - gerðu allt annað
Bloggað um fréttina
-
Andri Geir ArinbjarnarsonÁtti FME ekki frekar að afla og miðla svona
-
Þórarinn Þ GíslasonHVERNIG GETUR ÞETTA VERIÐ ÖÐRUVÍSI ÞEGAR HVER
-
Þórbergur TorfasonFargjaldagreiðslur.
-
Ægir Óskar HallgrímssonJóhanna með Davíð á heilanum.
-
Benedikt SigurðarsonMinnisblaðið: - var það bókað í
-
Stefán Friðrik StefánssonJóhanna víkur sér undan ábyrgð á hruninu
-
Heimir L FjeldstedOpna þarf umræðuna
-
Gísli Foster HjartarsonÉg ekki skilja!!!!
-
Marta GunnarsdóttirFipaðist Heilagri Jóhönnu?
-
drilliHÁREIST HÚS
-
Þórður RunólfssonSeðlabankinn og ICESAVE
-
Alma Jenny GuðmundsdóttirKastljós viðheldur þöggun í samfélaginu - Er
-
Ragnar HilmarssonHvar var Björgvin G Sigurðsson þegar þetta var?
-
Jóhann ElíassonHún talar eins og hún hafi ekki verið í
-
Jakob Þór HaraldssonYfirhylming byrjuð!
Athafnir Seðlabankans voru ekki í samræmi við alvarlegar upplýsingar um íslenska bankakerfið sem komu fram á minnisblaði bankans frá því í febrúar. Jóhanna segist telja að Seðlabankinn hafi sjálfur stungið upp ferð formanna stjórnarflokkanna sem vörðu íslenska bankakerfið mánuði eftir að minnisblaðið var skrifað.
Jóhanna Sigurðardóttir segist ekki hafa séð minnisblað Seðlabankans frá því í febrúar í fyrra þar sem komu fram upplýsingar um slæma stöðu bankanna og sérlega er tilgreint hættuspil Kaupþings og Glitnis.
Jóhanna segir að upplýsingarnar á minnisblaðinu hafi verið mjög alvarlegar og þeir sem hefðu haft með efnahagsmálin að gera hefðu að minnsta kosti átt að vita af tilvist þess. Fram hefur komið að einungis þrír ráðherrar, Geir H. Haarde, Árni M Mathiesen og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir vissu um blaðið.
Hún segir þó að innihaldið stangist á við viðbrögð Seðlabankans í framhaldinu, til að mynda, þá ákvörðun að aflétta bindiskyldu á útibú erlendis, einungis mánuði síðar, sem hafi hvatt til þess að auka við Icesave reikningana og skýrslunni um fjármálastöðugleikann í maí þar sem kemur fram að bankakerfið sé traust.
Í mars í fyrra héldu formenn stjórnarflokkanna líka í sérstaka ferð til Danmerkur og Bandaríkjanna til að verja íslensku bankanna og sannfæra efasemdamenn um styrk þeirra. Jóhanna segir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Geir H. Haarde verði sjálf að svara fyrir ábyrgðina á þeirri ferð, þau hafi tekið ákvörðun um að gera þetta með þessum hætti. Hún segist þó ekki muna betur en uppástungu um slíkt ,,roadshow" hafi verið að finna á þessu sama minnisblaði.
Til baka







Senda inn efni

