Skilanefnd fyrir Sparisjóðabankann
Fjármálaeftirlitið (FME) tók á fimmtudag ákvörðun um að víkja félagsstjórn Sparisjóðabanka Íslands hf. í heild sinni frá störfum og skipa í staðinn skilanefnd sem tekur við öllum heimildum fyrri stjórnar samkvæmt ákvæðum laga nr. 125/2008 um sérstakar aðstæður á fjármálamarkaði.
Þann 21. mars tók FME ákvörðun um að ráðstafa eignum og skuldum Sparisjóðabanka Íslands hf. til Nýja Kaupþings banka hf. og Seðlabanka Íslands vegna yfirvofandi og alvarlegs lausafjárskorts bankans og viðvarandi eiginfjárvanda.
Í þeirri ákvörðun FME var ekki skipuð skilanefnd fyrir Sparisjóðabanka Íslands hf. enda var gert ráð fyrir að yfirfærsla innlána tæki skamman tíma og hún væri einföld í framkvæmd. Vegna tæknilegra vandkvæða tafðist yfirfærsla innlána hins vegar og því tók FME áðurnefnda ákvörðun um að skipa skilanefnd.
Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.
Til baka







Senda inn efni



