[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 1.9.10
2 13 15 24 26 46
14 31   30
Jóker
7 2 4 7 4  
Birt án ábyrgðar
Fátækt

Fasteignir:
mest skoðað

Fýlshólar, 111 Reykjavík Fýlshólar Reykjavík
Austurbyggð
, 801 Selfoss (dreifbýli) Austurbyggð Selfoss (dreifbýli)
Leiðhamrar, 112 Reykjavík Leiðhamrar Reykjavík
Aragata, 101 Reykjavík Aragata Reykjavík
Eiríksgata, 101 Reykjavík Eiríksgata Reykjavík
Sólvallagata, 101 Reykjavík Sólvallagata Reykjavík
Eskiholt, 210 Garðabær Eskiholt Garðabær
Dalsel, 109 Reykjavík Dalsel Reykjavík
Rauðalækur, 105 Reykjavík Rauðalækur Reykjavík
Sörlaskjól, 107 Reykjavík Sörlaskjól Reykjavík
Viðskipti | Morgunblaðið | 9.4.2009 | 08:00

Fóru á svig við gjaldeyrishöft

Þrír fyrrum starfsmenn Askar Capital eru grunaðir um brot á lögum og verklagsreglum bankans. Bankinn hefur sent tilkynningu þess efnis til Fjármálaeftirlitsins. Samkvæmt henni varða brotin starfsemi í eigin félagi starfsmannanna án vitneskju bankans og tengjast fjármagnsflutningum fyrir hönd þriðja aðila á tímabilinu desember 2008 til mars 2009.

Heimildir Morgunblaðsins herma að starfsmennirnir þrír hafi í raun verið að færa fjármuni erlendis frá og öfugt á svig við þau gjaldeyrishöft sem eru við lýði á Íslandi. Um er að ræða færslur upp á tugi milljóna króna. Að einhverju leyti voru þeir að sýsla fyrir fyrrum viðskiptavini Askar Capital en inni í eigin félagi.

Á þeim tíma sem meint brot mannanna áttu sér stað var Milestone, eigandi Askar Capital, í endurskipulagningarferli hjá skilanefnd Glitnis. Um miðjan mars var síðan gengið frá því að allar íslenskar eignir Milestone væru settar undir Sjóvá, sem var ein helsta eign félagsins. Sjóvá verður mögulega selt á næstunni en ólíklegt er að eignir Askar fylgi með í þeirri sölu.

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Þriðjudaginn 31. ágúst