Byggingaverktaki opnar súpueldhús.
Bloggað um fréttina
-
Jóna Kolbrún GarðarsdóttirÓkeypis auglýsing?
-
Gísli Foster HjartarsonMegi þeim vegna vel
-
Jenný Anna Baldursdóttir"Súpueldhús"?
-
Þórður Helgi ÞórðarsonÉg tek ofan fyrir þessu ágæta fólki.
-
Margrét Rún Guðmundsdóttir KrausHúrra fyrir sjálfsbjargarviðleitninni!
Fyrsta búlgarska veitingahúsið í Reykjavík tekur til starfa í þessari viku.
Það eru hjónin Rositsa og Stefán Birgir sem eru veitingamenn. Hún er frá Búlgaríu og ætlar að elda þjóðlega rétti en maturinn þar á margt sammerkt með grískum og tyrkneskum mat.
Staðurinn heitir Balkanika og er við Vitastíg en Stefán Birgir er byggingaverktaki sem þurfti að róa á önnur mið í kreppunni. Húsið rak á fjörur hans í öðrum viðskiptum, en þar var Núðluhúsið áður til húsa. Hann fékk þá hugmynd að opna þar nýtt veitingahús þar sem konan hans eldaði, einskonar súpueldhús í ódýrari kantinum en bæði verður hægt að taka matinn með heim og borða hann á staðnum.
Stefán Birgir ætlar ekki að sitja auðum höndum og býst við því að þvo upp og þjóna til borðs á nýja staðnum. Á annað hundrað Búlgarar búa á Íslandi en þeir hafa sýnt nýja staðnum mikinn áhuga eftir að það spurðist út að hann væri að taka til starfa.
Til baka








Senda inn efni
