Ætla allir í hungurverkfall
Bloggað um fréttina
-
Guðrún Emilía GuðnadóttirHvar liggur hundurinn grafinn?
-
Torfi MagnússonÉg skil ekki
-
Þór SaariTafl dauðans
-
Sigurður Þór GuðjónssonBoomerang dómsmálaráðherra og hungurverkfall
-
Axel Pétur AxelssonEr UTL vanhæf ?
-
Anna Sigríður GuðmundsdóttirMannúðlegra að vera í fangelsi en
-
Axel Jóhann HallgrímssonAð svelta sig til áhrifa
-
percy B. StefánssonEnn og aftur vantar okkur allannn skilning og
Allir hælisleitendur sem dvelja á Fit í Njarðvík ætla í hungurverkfall fái málefni Mansri Hichem hælisleitanda frá Alsír sem hefur verið í hungurverkfalli í nítján daga ekki farsælan endi.
Hann vill að ósk hans um hæli verði afgreidd en hann hefur beðið í tvö ár eftir úrskurði, aðrir jafnvel mun lengur.
Jóhann Thoroddsen sálfræðingur hjá Rauða Krossinum segir manninn mjög kvalinn og ástand hans alvarlegt. Hann segir óskandi að menn þyrftu ekki að bíða svona lengi eftir úrskurði eins og raunin hafi verið.
Maðurinn liggur í sameiginlegri stofu hælisleitenda á Fit þar sem hann verður að vera nærri salerni. Þar voru nokkurir mótmælendur samankomnir í dag auk annarra hælisleitenda sem vilja sýna stuðning. Hann sagði í samtali við mbl sjónvarp að sér liði ákaflega illa en Linda Björg Magnúsdóttir segir að samkvæmt Dublinarsáttmálanum eigi menn rétt á úrskurði innan sex mánaða
Yfirvöld báðu manninn að undirrita yfirlýsingu þess efnis að hann þæði ekki læknisaðstoð ef hungurverkfallið drægist á langinn. Hann neitaði og hefur slík yfirlýsing Því ekki verið undirituð. Jóhann segist ekki þekkja nákvæmlega þá málavöxtu en sér finnist þetta óneitanlega kuldalegt.
Til baka








Senda inn efni

