
Sverrir Vilhelmsson
Útibúum Landsbankans fækkað
Landsbankinn hefur ákveðið að sameina útibú bankans á Höfðabakka og í Grafarholti og verður sameinað útibú starfrækt í húsnæði Grafarholtsútibús við Vínlandsleið. Einnig hefur verið ákveðið að sameina tvö útibú bankans í sveitarfélaginu Snæfellsbæ – afgreiðsluna á Hellissandi og útibúið í Ólafsvík – með bækistöðvar á Ólafsbraut í Ólafsvík. Fyrsti starfsdagur í sameinuðum útibúum verður mánudaginn 25. maí nk.
Engir starfsmenn munu missa vinnu sína vegna þessara breytinga. Starfsmenn bankans á Hellissandi munu eftirleiðis þjóna viðskiptavinum sínum frá Ólafsvík. Flestir starfsmenn Höfðabakkaútibús munu einnig flytja sig í Grafarholt og þjóna áfram núverandi viðskiptavinum á nýjum stað, að því er segir í tilkynningu frá Landsbankanum.
Útibússtjóri í Grafarholti verður Kristján Guðmundsson sem í dag stýrir útibúi bankans á Höfðabakka.
Útibússtjóri Landsbankans í Snæfellsbæ er sem fyrr Brynjólfur Þór Brynjólfsson.
Til baka







Senda inn efni

