Verðmæti eigna lykilatriði

mbl.is

„ÞAÐ á ekki að borga af þessu næstu sjö árin, sem þýðir að þetta hefur engin praktísk áhrif fyrir okkur í þeim vanda sem við erum í núna,“ segir Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor, um lausn Icesave-deilunnar. „Vaxtatryggingarálagið er eitthvað nálægt 5 prósentum svo ríkissjóður fengi varla hagstæðari lán.“ Hann segir mat á samningnum þó velta á hvaða eignir eigi að ganga á móti skuldunum.

Með því að fresta afborgunum þar til þarnæsta ríkisstjórn hafi tekið sæti í Bretlandi sé í raun opnað á þann möguleika að Bretar taki á sig einhvern hluta skuldanna, en Gordon Brown geti ekki kynnt annað fyrir breska þinginu nú en að Íslendingar taki ábyrgð á málinu.

Þórólfur segir ljóst að samningsstaða okkar hafi verið slæm. „Það væri möguleiki á að gera verri samning og sjálfsagt betri samninga líka. En ríkisstjórnir beggja landanna eru uppi í horni í málinu.“

Ólafur Ísleifsson, lektor í hagfræði við HR, segir samningsdrögin vekja upp þrjár meginspurningar. „Í fyrsta lagi hvaða upplýsingar eru fáanlegar um verðmæti þeirra eigna sem standa á móti Icesave-skuldbindingunum svo hægt sé að meta hversu stór hluti þeirra kann að falla á ríkissjóð. Í öðru lagi hvaða vaxtatekjum er gert ráð fyrir af þeim eignum sem kæmu þá á móti vaxtagreiðslum. Og í þriðja lagi hvort við ákvörðun vaxta af láninu hafi verið tekið mið af því stórfellda tjóni sem breska ríkisstjórnin bakaði Íslendingum með því að beita hryðjuverkalögum gegn íslenskum hagsmunum.“ Ógerlegt sé að meta samninginn að þessum spurningum ósvöruðum. ben@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert