Tekist á um yfirlit eigna úr sjóðum Landbankans
Hæstiréttur hefur fellt úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur en dómurinn vísaði frá kröfu AFLs starfsgreinafélags um að viðurkennd verði skylda Landsbanka Íslands og Landsvaka að láta í té sundurliðað yfirlit eigna peningamarkaðssjóða Landsbankans yfir tímabilið frá 1. september 2008 til 28. október 2009. Hæstiréttur lagði það því fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar.
AFL og Landsbankinn gerðu með sér samning um eignastýringu sjúkrasjóðs AFLs. Tók Landsbankinn að sér að „að veita viðskiptavini ráðgjöf vegna viðskipta með fjármálagerninga, annast vörslu þeirra og eignastýring.“ Bankinn hafði fullt og ótakmarkað umboð til þess að stýra eignum sjúkrasjóðsins í samræmi við fjárfestingastefnu sem fyrirfram var ákveðin.
Við hrun bankanna í október á síðasta ári og setningu laga um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði var lokað fyrir allar innlausnir í sjóðum Landsbankans. Sjóðfélögum voru greiddar út eignir í formi innlána og var útgreiðsluhlutfall úr sjóðunum á bilinu 60% til 74,1%. Sjúkrasjóður AFLs fékk 68,8% eignar sinnar.
Í framhaldinu óskaði AFL eftir sundurliðuðum upplýsingum um eignir sjóðanna frá 1. september 2008 til að geta lagt mat á hvort fjárfestingastefnan hefði verið virt í rekstri sjóðsins og viðskiptahættir eðlilegir. Taldi AFL yfirlit um eignastýringu frá 1. janúar 2008 til 30. september sama ár sem Landsbankinn lét í té ófullnægjandi.
Dómkrafan of almennt orðuð
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á það með lögmönnum Landsvaka og Landsbankans að dómkrafa AFLs væri almennt orðuð og ekki skýrt afmörkuð. Þannig lægi ekki fyrir hvaða skjöl væri verið að viðja um eða hvort skjöl séu yfirleitt til staðar sem uppfylli kröfuna sem sett var fram. Taldi dómurinn ekki hjá því komist að vísa málinu frá.
Í dómi Hæstaréttar segir hins vegar að AFL hafi ekki haft aðgang að gögnunum og því ekki að vænta að hann geti lýst þeim öðru vísi en með almennum hætti. Til þess var einnig litið að upplýsingaskylda Landsbankans, líkt og henni er líst í samningi aðilanna, er mjög víðtæk og er ekki einskorðuð við að veita aðgang að skjölum sem fyrir liggja.
Til baka







Senda inn efni



