80% fjölgun innbrota milli ára
Tilkynnt var um 80% fleiri innbrot í síðasta mánuði samanborið við sama mánuði í fyrra. Þjófnuðum fjölgaði einnig mikið milli ára, eða um 38%. Þetta kemur fram í Afbrotatölfræði ríkislögreglustjóra. Umferðarlagabrotum og fíkniefnalagabrotum fækkar hins vegar.
Í síðasta mánuði var lögregluliðum á landinu tilkynnt um 303 innbrot. Í maí á síðasta ári var tilkynnt um 167 innbrot og 187 árið 2007. Þjófnaðir voru einnig tíðir en tilkynnt var um 417 slík brot í síðasta mánuði. Á sama tíma í fyrra voru brotin 302 og árið 2007 voru þau 276.
Fíkniefnabrotum fækkaði hins vegar töluvert en 83 slík komu upp á landinu í maímánuði. Í sama mánuði fyrir ári voru þau hins vegar 124. Þá voru færri teknir ölvaðir undir stýri, eða 135. Í maí á síðasta ári voru hins vegar 188 stútar teknir. Eignaspjöllum og líkamsmeiðingum fer einnig fækkandi milli ára.
Taka ber fram að um bráðabirgðatölur er að ræða.
Til baka







Senda inn efni



