Misræmi í skattlagningu

Kristján Guðmundsson tekur við viðurkenningu úr hendi Anne Folke, stjórnanda …
Kristján Guðmundsson tekur við viðurkenningu úr hendi Anne Folke, stjórnanda Carnegie-verðlaunanna, í Listasafni Íslands. mbl.is/Eggert

Þeir norrænu listamenn sem hljóta alþjóðlegu Carnegie-myndlistarverðlaunin sitja ekki við sama borð þegar að skattlagningu verðlaunanna kemur.

Á Íslandi greiðir verðlaunahafi tekjuskatt og útsvar af verðlaunafénu, eins og lög gera ráð fyrir, en lög á hinum Norðurlöndunum kveða á um skattfrelsi sömu verðlauna. Þetta kemur fram í samtali við Jerker Lövgren, lögfræðing í Svíþjóð.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segir frávik frá skattalögum á Íslandi óheppileg. Íslensk lög kveða þó á um skattfrelsi annarra norrænna verðlauna, en það eru verðlaun Norðurlandaráðs og Nóbelsverðlaunin.

Kristján Guðmundsson myndlistarmaður hlýtur í ár fyrstu verðlaun Carnegie-myndlistarverðlaunanna, fyrstur Íslendinga.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert