[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  4.9.2010
13 14 30 36 37 16
Jóker
3 4 6 6 7  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar
Fátækt

Fasteignir:
mest skoðað

Jöklasel, 109 Reykjavík Jöklasel Reykjavík
Hólavað, 110 Reykjavík Hólavað Reykjavík
Víðimelur, 101 Reykjavík Víðimelur Reykjavík
Gulaþing, 203 Kópavogur Gulaþing Kópavogur
Engjasel, 109 Reykjavík Engjasel Reykjavík
Hvassaleiti, 108 Reykjavík Hvassaleiti Reykjavík
Álftamýri, 108 Reykjavík Álftamýri Reykjavík
Fossahvarf, 203 Kópavogur Fossahvarf Kópavogur
Litliás, 311 Borgarnes (dreifbýli) Litliás Borgarnes (dreifbýli)
Grýtubakki , 109 Reykjavík Grýtubakki Reykjavík
Langreyður skorin í Hvalstöðinni í Hvalfirði.

Langreyður skorin í Hvalstöðinni í Hvalfirði. Ómar Óskarsson

Innlent | mbl.is | 21.6.2009 | 09:43

Búið að veiða fjóra hvali

Fjórar langreyðar eru komnar á land í Hvalfirði, en þar vinna um 70 manns að hvalskurði og vinnslu hvalaafurða. Þoka og lélegt skyggni er nú á miðunum. Gunnlaugur Fjólar Gunnlaugsson segir að vertíðin fari vel af stað og vonast eftir að takist að veiða fleiri dýr í dag.

"Það er eins og verksmiðjan hafi stoppað í fyrradag, en ekki fyrir 20 árum," sagði Gunnlaugur þegar hann var spurður hvernig gengi að koma verksmiðjunni í gang.

Hvalur 9 er nú á miðunum, en stefnt er að því að Hvalur 8 fari út í næstu viku. Gunnlaugur sagði að stutt væri á miðin og nægur hvalur í sjónum. Það þyrfti hins vegar að vera sæmilega gott skyggni svo að hvalveiðimenn gætu athafnað sig.

Gunnlaugur sagði að um 70 manns störfuðu hvalsstöðinni í Hvalfirði, um 30 manns væru í áhöfn hvalbátanna og um 20 manns ynnu í frystingunni á Akranesi.

Samkvæmt reglugerð sjávarútvegsráðherra má í ár veiða 150 langreyðar.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í gær
Laugardaginn 4. september