[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 17.3.10
5 6 36 37 38 43
28 41   39
Jóker
5 1 5 1 4  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Vættaborgir, 112 Reykjavík Vættaborgir Reykjavík
Vættaborgir, 112 Reykjavík Vættaborgir Reykjavík
Barónsstígur, 101 Reykjavík Barónsstígur Reykjavík
Fagribær, 110 Reykjavík Fagribær Reykjavík
Kjarrmóar, 210 Garðabær Kjarrmóar Garðabær
Þingvallavatn-lóð, 801 Selfoss (dreifbýli) Þingvallavatn-lóð Selfoss (dreifbýli)
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Eikardalur, 260 Njarðvík Eikardalur Njarðvík
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Stórikriki, 270 Mosfellsbær Stórikriki Mosfellsbær
Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings.

Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings. mbl.is/Árni Sæberg

Innlent | mbl.is | 22.6.2009 | 09:59

Ekki króna á ríkið vegna EDGE

Skilanefnd Kaupþings hefur hafið endurgreiðslur til innistæðueigenda bankans í Þýskalandi og þegar sent fyrirmæli um endurgreiðslu innistæðna til um 20.000 viðskiptavina.

Að sögn skilanefndarinnar munu endurgreiðslur innistæðna halda áfram á næstu dögum og er vonast til að þær berist til ríflega 34.000 viðskiptavina Edge á næstu vikum.

Skilanefndin tilkynnti um miðjan apríl að nægt fjármagn væri fyrir hendi til að greiða út allar innistæður Edge í Þýskalandi. Um miðjan maí var ljóst að endurgreiðsluferlið gæti hafist en það fólst m.a. í því að öllum innistæðueigendum bankans í Þýskalandi var sent bréf frá Íslandi og þeir gátu í framhaldinu staðfest reikningsupplýsingar til að taka við endurgreiðslunni.

Alls sendi bankinn bréf til rúmlega 34 þúsund innistæðueigenda og hefur nú þegar fengið staðfestingu til baka frá stærstum hluta þeirra. Þegar hafa um 20 þúsund staðfestingar verið skráðar og greiðslufyrirmæli vegna þeirra verið send til Þýskalands. Af tæknilegum ástæðum er endurgreiðsluferlið tekið í skrefum sem þýðir að fyrstu innistæðueigendur munu fá endurgreitt á næstu dögum og aðrir í framhaldinu.

Heildargreiðsla til innistæðueigenda Kaupþing Edge í Þýsklandi mun nema rúmlega 320 milljónum evra sem samsvarar um 58 milljörðum króna.

Steinar Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings, segir í tilkynningu að margt hafi tafið þetta ferli og það hafi verið flóknara en nokkurn óraði fyrir að klára þetta mál. Þegar endurgreiðslum til innstæðueigenda í Þýskalandi ljúki hafi allar forgangskröfur innstæðueigenda í útbúum Kaupþings verið greiddar án þess að króna falli á íslenska skattgreiðendur.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í gær