Starfsmenn Akureyrarseturs Náttúrufræðistofnunar Íslands fundu í gær máttfarinn og grútarblautan fálka í Sléttuhlíð í Skagafirði rétt norðan við Tjarnir í Sléttuhlíð.
Þeir gerðu Náttúrustofu Norðurlands vestra viðvart og kom starfsmaður hennar með búr, sem fuglinn var settur í og fluttur á Sauðárkrók. Þar var fálkinn skoðaður og er greinilegt að hann hefur lent í grút.
Fram kemur á heimasíðu Nátttúrustofunnar að fuglinn hafi verið þrekaður þegar hann fannst og hoppaði um en náði sér ekki á flug. Hann hresstist nokkuð fljótt eftir að honum hafði verið gefið að éta og eftir næturhvíld virtist hann nokkuð sprækur.
Fálkinn var sendur til Reykjavíkur og verður hlúð að honum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Verður fuglinum sleppt aftur í Skagafirði fljótlega ef allt gengur að óskum.
Ekki er langt síðan grútarblautur örn fannst á Snæfellsnesi og var hann einnig fluttur í Húsdýragarðinn.