
Frá Bíldudal mbl.is/Árni Sæberg
Átaki frestað vegna lítils atvinnuleysis
Fyrirhuguðu atvinnuátaksverkefni á Bíldudal hefur verið frestað þar sem atvinnuleysi er lítið sem ekkert á svæðinu. Verkefnið átti að standa yfir í sex mánuði.
Vinnumálastofnun hafði samþykkt að styrkja atvinnuátaksverkefni á Bíldudal og fólst verkefnið í skráningu ýmissa opinberra gagna af suðursvæði Vestfjarða. Átti verkefnið að standa í sex mánuði og hafði eitt stöðugildi. Búið var að útvega húsnæði á Bíldudal.
Munu einungis tíu manns vera á atvinnuleysisskrá í Vesturbyggð og fer þeim fækkandi. Hefur verkefnið því verið sett á bið. Svæðisútvarp Vestfjarða greindi frá þessu.
Til baka







Senda inn efni

