[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  4.9.2010
13 14 30 36 37 16
Jóker
3 4 6 6 7  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar
Fátækt

Fasteignir:
mest skoðað

Jöklasel, 109 Reykjavík Jöklasel Reykjavík
Hólavað, 110 Reykjavík Hólavað Reykjavík
Víðimelur, 101 Reykjavík Víðimelur Reykjavík
Vesturgata, 101 Reykjavík Vesturgata Reykjavík
Engjasel, 109 Reykjavík Engjasel Reykjavík
Hvassaleiti, 108 Reykjavík Hvassaleiti Reykjavík
Byggðarendi, 108 Reykjavík Byggðarendi Reykjavík
Álftamýri, 108 Reykjavík Álftamýri Reykjavík
Litliás, 311 Borgarnes (dreifbýli) Litliás Borgarnes (dreifbýli)
Grýtubakki , 109 Reykjavík Grýtubakki Reykjavík

Mbl.is/Golli

Innlent | mbl.is | 26.6.2009 | 17:39

Loftorka óskar gjaldþrotaskipta

Loftorka Borgarnesi hefur lagt fram beiðni um gjaldþrotaskipti. Hjá fyrirtækinu starfa um 70 manns og hefur fyrirtækið verið stærsti vinnustaðurinn í sveitarfélaginu.

Fréttavefur Skessuhorns greinir frá því í dag að Loftorka Borgarnesi ehf. hafi í dag lagt inn beiðni um gjaldþrotaskipti til Héraðsdóms Vesturland. Skiptastjóri verður nú settur yfir búið.

„Það eru margar samverkandi ástæður sem valda því að þessi staða er komin upp. Gríðarlegur samdráttur á byggingamarkaði er stærsta ástæðan, þá hrun íslensku krónunnar sem hafði veruleg áhrif á skuldastöðu félagsins og í þriðja lagi eru rekstrarvandræði viðskiptavina sem ekki hafa getað staðið í skilum.  Verkefnastaðan hjá félaginu hefur þannig hrunið algjörlega,” sagði Óli Jón Gunnarsson framkvæmdastjóri í samtali við Skessuhorn.

Hjá Loftorku starfa nú 70 starfsmenn en þegar best gekk, árið 2007, voru þeir tæplega þrjú hundruð.

„Á síðustu dögum lá það fyrir að viðskiptabanki okkar, sem er Íslandsbanki, sá ekki grundvöll til að halda áfram þessum rekstri í núverandi mynd. Því var starfsmönnum fyrirtækisins tilkynnt í dag að fyrirtækinu yrði lokað og sótt um gjaldþrot og menn munu ekki mæta til vinnu eftir helgi,” sagði Óli Jón.

Samkvæmt heimildum Skessuhorns er vilji fyrir því meðal heimamanna að allt verði gert til að freista þess að endurvekja rekstur Loftorku, enda hefur fyrirtækið verið stærsti rekstraraðilinn í Borgarfirði.


Sjá ítarlegar
á vef Skessuhorns.

 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í gær
Laugardaginn 4. september