[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  4.9.2010
13 14 30 36 37 16
Jóker
3 4 6 6 7  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar
Fátækt

Fasteignir:
mest skoðað

Jöklasel, 109 Reykjavík Jöklasel Reykjavík
Hólavað, 110 Reykjavík Hólavað Reykjavík
Víðimelur, 101 Reykjavík Víðimelur Reykjavík
Vesturgata, 101 Reykjavík Vesturgata Reykjavík
Engjasel, 109 Reykjavík Engjasel Reykjavík
Hvassaleiti, 108 Reykjavík Hvassaleiti Reykjavík
Byggðarendi, 108 Reykjavík Byggðarendi Reykjavík
Álftamýri, 108 Reykjavík Álftamýri Reykjavík
Litliás, 311 Borgarnes (dreifbýli) Litliás Borgarnes (dreifbýli)
Grýtubakki , 109 Reykjavík Grýtubakki Reykjavík
Pallborðið á borgarafundinum.

Pallborðið á borgarafundinum.

Innlent | mbl.is | 29.6.2009 | 21:47

Ekkert til sparað að aðstoða samninganefndina

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði á borgarafundi í Iðnó í kvöld að ekkert hefði verið sparað til að aðstoða samninganefndina sem gerði samninga við Breta og Hollendinga um Icesave-skuldbindingarnar.

Sagði Steingrímur að meðal annars hefðu lögfræðingar, bæði innlendir og erlendur, verið ráðnir til að veita nefndinni ráðgjöf, þar á meðal virt bresk lögfræðistofa.

Þá sagði hann að í nefndinni hefðu setið, auk Svavars Gestssonar, sendiherra og formanns, lögfræðingar, viðskiptafræðingar og hagfræðingar úr forsætisráðuneyti, utanríkisráðuneyti og Seðlabanka. Allar þessar stofnanir stæðu með sínum fulltrúum og mæltu með þessum samningi.

Gunnar Sigurðsson, fundarstjóri, spurði Steingrím hvernig hann hefði brugðist við á borgarafundi ef Sjálfstæðismenn hefðu verið við völd og valið Hannes Hólmstein Gissurarson til að stýra samninganefndinni.  Steingrímur svaraði að Svavar væri reyndur samningamaður og sjálfur myndi hann treysta mörgum sjálfstæðismönnum til verks á borð við þetta.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í gær
Laugardaginn 4. september