[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 17.3.10
5 6 36 37 38 43
28 41   39
Jóker
5 1 5 1 4  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Barónsstígur, 101 Reykjavík Barónsstígur Reykjavík
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Spítalastígur, 101 Reykjavík Spítalastígur Reykjavík
Selhólsbraut, 801 Selfoss (dreifbýli) Selhólsbraut Selfoss (dreifbýli)
Arnarheiði, 810 Hveragerði Arnarheiði Hveragerði
Álfhólsvegur, 200 Kópavogur Álfhólsvegur Kópavogur
Bakkastaðir, 112 Reykjavík Bakkastaðir Reykjavík
Fífusel, 109 Reykjavík Fífusel Reykjavík
Laugateigur, 105 Reykjavík Laugateigur Reykjavík
Stórikriki, 270 Mosfellsbær Stórikriki Mosfellsbær
Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra

Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra mbl.is/Kristinn

Innlent | mbl.is | 21.7.2009 | 22:36

Ögmundur: Hugsum um þjóðarhag

Bloggað um fréttina

Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, segist hafa styrkst í þeirri afstöðu að hann vill sjá þverpólitíska samstöðu á Alþingi: að Íslendingar sneru bökum saman og hugsuðu um þjóðarhag og aðeins þjóðarhag þegar kemur að Icesave. Hann segir að þó íslenskir fjármálamenn hafi farið illa að ráði sínu á þjóðin ekki að þurfa að vera a hjánum. Ekki megi láta stjórnast af óðagoti.Þetta kemur fram á vef ráðherrans í kvöld.

„Stöðugt koma fram nýjar upplýsingar sem tengjast Icesave-skuldbindingunum. Álitamálin hrannast upp. Líka hótanirnar. Ef við ekki göngum í einum grænum frá Icesave er okkur sagt að aðildarumsókn til Evrópusambandsins sé í uppnámi!
Skyldi öllu fórnandi fyrir það?

Ef við göngum ekki í snarhasti frá Icesave þá koma ekki lán í gjaldeyrisforðann!
Skyldi öllu fórnandi fyrir það?

Nú síðast er okkur sagt að ef ekki verði þegar í stað veitt ríkisábyrgð á Icesave kröfur Breta og Hollendinga þá sé samkomulag um aðkomu kröfuhafa að Kaupþingi í hættu stefnt!  Skyldi öllu fórnandi fyrir það?

Í ræðu sem ég flutti um Icesave samninginn á Alþingi þegar hann fyrst kom fyrir þingið hvatti ég til þverpólitískrar samstöðu; að Íslendingar sneru bökum saman og hugsuðu um þjóðarhag og aðeins þjóðarhag. ... (ræða Ögmundar)

Ég hef styrkst í þessari afstöðu. Við sjáum það sífellt betur á hve ósvífinn hátt er sótt að íslenskum almenningi. Sífellt er gefið í skyn að allt verði betra eftir því sem við lútum lægra. Þetta er mikil villuhugsun.

Þótt íslenskir fjármálamenn hafi farið illa að ráði sínu á þjóðin ekki að þurfa að vera á hnjánum. Við eigum ekki að hræðast hótanir og megum aldrei láta stjórnast af ótta og óðagoti, hvað þá að hið gamalkveðna, „þetta reddast" stýri för. Nú er þörf á raunsæi og yfirvegun þar sem hagsmunir almennings eru í fyrirrúmi," skrifar Ögmundur á vef sinn.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Tengdar fréttir - Icesave

Innlent | mbl.is | 10.03.2010 | 08:41

Skýr skilaboð í Icesave-könnun

Innlent | mbl.is | 08.03.2010 | 11:24

Engir fundir boðaðir enn

Innlent | mbl.is | 04.03.2010 | 12:46

Mikill áhugi erlendra miðla

Innlent | mbl.is | 24.02.2010 | 07:05

Íslendingar hafa náð frumkvæði

Innlent | mbl.is | 11.01.2010 | 11:53

Segir margt athugavert við málflutning Lipietz

Innlent | mbl.is | 10.01.2010 | 13:37

Vliet: Ekkert réttlæti hefur enn náðst

Innlent | Morgunblaðið | 05.12.2009 | 06:50

Samkomulag um afgreiðslu Icesave

Innlent | mbl.is | 04.12.2009 | 15:33

Krefjast þess að Icesave verði vísað frá

Innlent | mbl | 04.12.2009 | 14:10

„Ekkert mál hentar betur"

Innlent | mbl.is | 30.11.2009 | 09:46

Sendi nýtt bréf á Strauss-Kahn

Fleiri tengdar fréttir

Leita í fréttum mbl.is

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær