Að andæfa lyginni

Karl Wernersson.
Karl Wernersson.

Hingað til hefur það verið stefna stjórnenda og eigenda Milestone að taka ekki nema að takmörkuðu leyti þátt í fjölmiðlaumfjöllun um félagið, skrifar Karl Wernersson í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

„Allt frá stofnun Milestone hef ég sem stjórnarformaður reynt að halda mig að mestu frá almennri umræðu. Milestone hefur ætíð verið að fullu í eigu fjölskyldu minnar og engir aðrir hluthafar hafa komið að eignarhaldi á fyrirtækinu, hvorki almenningur, lífeyrissjóðir né aðrir fjárfestar. Félagið hefur aldrei verið skráð á markað. Milestone er fjölskyldufyrirtæki.

Enginn er hafinn yfir gagnrýni

Fjölmiðlaumfjöllun um málefni Milestone í kjölfar bankahrunsins hefur verið í mörgum atriðum röng. Það er stemmning í samfélaginu fyrir þess háttar fréttaflutningi nú um stundir sem fjölmiðlar elta. Einstakir fréttamenn virðast leggja sig í líma við að snúa staðreyndum á haus. Slík fréttamennska þrífst í skjóli tortryggni sem er ráðandi í íslenskri fjölmiðlun. Starfsmenn Milestone og dótturfélaga, ásamt fjölskyldum þeirra, fara ekki varhluta af umræðunni, sem er mjög meiðandi. Þegar svo er komið er nauðsynlegt að ég sem stjórnarformaður félagsins freisti þess að koma sjónarmiðum okkar á framfæri og dragi fram staðreyndir.

Það stendur skrifað að það þurfi kraft til að andæfa lyginni. Ég játa það fúslega að undanfarnir mánuðir hafa verið mér og mörgum öðrum starfsmönnum Milestone og dótturfélaga gríðarlega erfiðir. Hingað til hef ég sætt mig við fleipur fjölmiðla um Milestone, Sjóvá og mig persónulega. Ég er ekki hafinn yfir gagnrýni. Starfsemi Milestone er ekki hafin yfir gagnrýni. Að sama skapi eru fjölmiðlar ekki hafnir yfir gagnrýni en þeir verða að gæta orða sinna í opinberri umræðu.

Ósvífnar lygar og uppspuni frá rótum

Í frétt Stöðvar 2 hinn 27. júlí sl. sem bar yfirskriftina Milljarðar í skattaskjól kemur fram að á sama tíma og íslenska ríkið eignaðist 75% eignarhlut í Glitni hf., hinn 29. september sl., hafi hafist millifærslur frá Straumi-Burðarás fjárfestingabanka hf. á reikninga íslenskra auðmanna í skattaskjólum. Fullyrt er að ég hafi verið umsvifamikill í þessum fjármagnsflutningum auk þess sem fjármunir hafi verið millifærðir frá Milestone ehf. Upplegg fréttarinnar var það að ég hefði komið peningum undan í skattaskjól.

Staðreynd málsins er þessi: Ég á ekki bankareikning hjá Straumi, ég á ekki og hef aldrei átt innstæður í Straumi, ég flutti enga fjármuni frá Íslandi í aðdraganda eða kjölfar bankahrunsins. Milestone átti engar innstæður hjá Straumi og Milestone stóð ekki í fjármagnsflutningum frá Íslandi í aðdraganda eða kjölfar bankahrunsins. Hvað stendur eftir af fréttinni? Nákvæmlega ekkert! Hún er uppspuni og lygi frá rótum. Skiptir þetta ekki máli? Er allt leyfilegt í íslenskri fjölmiðlun? Svona ósvífnar lygar og uppspuna getur enginn maður látið yfir sig ganga.

Tvö prósent arðgreiðslur til eigenda

Því miður ríður umfjöllun sem þessi ekki við einteyming. Skemmst er að minnast þess að vegna misvísandi frétta fjölmiðla um arðgreiðslur vátryggingafélaga sá Fjármálaeftirlitið sig knúið til að senda út tilkynningu þar sem birtar voru réttar upplýsingar um arðgreiðslur vátryggingafélaga og áréttað á hvaða forsendum ákvarðanir um slíkar greiðslur eru teknar.

Það liggur fyrir að heildarhagnaður Sjóvár árin 2004-2007 nam ríflega 23,5 milljörðum króna og hlutur Milestone af arðgreiðslum fyrir árin nam 17,3 milljörðum króna. Einnig er mikilvægt að árétta að fjárhagslegur styrkur Milestone-samstæðunnar var metinn af viðkomandi eftirlitsaðilum og þannig er reginmunur á arðgreiðslu til móðurfélags innan samstæðu og hins vegar arðgreiðslum í vasa eigenda móðurfélagsins. Í þessu samhengi er rétt að skoða afkomu og arðgreiðslur frá Milestone til eigenda.

Heildarhagnaður Milestone frá árinu 2004 til 2007 nam 58,5 milljörðum króna og heildararðgreiðslur til eigenda Milestone á þessu tímabili námu samtals 1,1 milljarði króna. Arðgreiðslur til eigenda Milestone námu því samtals 2% af uppsöfnuðum hagnaði áranna sem verða að teljast mjög hóflegar arðgreiðslur. Til samanburðar má nefna að vextir af innstæðum í banka námu á tímabilinu 10-15% á ári. Allar fullyrðingar um að eigendur Milestone hafi tæmt félögin eru því algerlega rakalaus þvættingur.

Nauðasamningur og rannsókn sérstaks saksóknara

Starfsmenn Milestone hafa undanfarna mánuði unnið af heilum hug með lánardrottnum félagsins í því að lágmarka tjón á eignum félagsins í aðdraganda og kjölfar falls íslensku bankanna. Í nokkurn tíma hefur legið fyrir tillaga um að eignarhald á Milestone flytjist yfir til kröfuhafa félagsins í gegnum formlegan nauðasamning. Fjölskylda mín tapar allri eign sinni í félaginu að fullu þar sem allt hlutafé okkar verður afskrifað og eignarhald flyst yfir til kröfuhafa. Þannig eru einfaldlega leikreglurnar og ég sætti mig við þær.

Alvarlegar ásakanir hafa komið fram í fjölmiðlum um málefni Sjóvár og Milestone í kjölfar húsleitar sérstaks saksóknara hinn 7. júlí sl. Stjórnendur Milestone sýna fullan samstarfsvilja og hafa beitt sér fyrir aukinni upplýsingagjöf til að varpa ljósi á þau mál sem saksóknari er að kanna. Ég ber fullt traust til þess að niðurstaða rannsóknarinnar verði fagleg og byggð á staðreyndum.

Sérstakur saksóknari hefur afrit af öllum tölvugögnum Milestone og dótturfélaga, öllum bókhaldsgögnum og hann fékk afhent öll þau gögn sem hann bað um í húsleitum á heimili mínu, heimilum stjórnenda Milestone og á starfsstöðvum félaganna. Ekkert var skilið undan. Engum gögnum hefur verið eytt. Allt er uppi á borðum. Ég hef ekkert að fela.

Menn spyrji sjálfa sig gagnrýnna spurninga

Það er mikil reiði í samfélaginu en ég bið menn að staldra við og spyrja sig nokkurra spurninga. Er það útilokað að eigendur og starfsmenn Milestone og dótturfélaga séu venjulegt fólk sem hafi unnið vinnu sína eftir bestu getu og vitund? Er ekki ólíklegt að eigendur Milestone hafi með skipulögðum hætti unnið að því að knésetja sín eigin fyrirtæki og eigin fjárhag? Er líklegt að starfsmenn leiki sér að því að tapa fjármunum og eyða starfsöryggi sínu í leiðinni? Gerir einhver slíkt af ásetningi? Eða er hugsanlegt að kerfið í heild hafi hrunið yfir samfélagið vegna alþjóðlegrar kreppu og fjöldamargra og ótengdra mistaka í íslensku fjármálakerfi?

Andrúmsloftið í samfélaginu er lævi blandið en á einhverjum tímapunkti verða menn að bera hönd fyrir höfuð sér. Að sama skapi veit ég að þorri manna tekur rökum og leggur sjálfstætt mat á staðreyndir mála. Ég geri hins vegar fastlega ráð fyrir því að viðbrögð fjölmiðla við þessari grein verði blendin. Einhverjir munu tala um að ég svífist einskis. Aðrir munu segja að ég kunni ekki að skammast mín. Hvernig dirfist hann? munu einhverjir segja.

Það hlýtur hins vegar að vera sanngjörn beiðni að fjölmiðlar skáldi ekki upp fréttir í þeim tilgangi að afvegaleiða umræðuna. Orð eru dýr og það er engum til hróss að vega að nafngreindum mönnum á forsendum sem ekki standast skoðun. Það er grunnkrafa að fjölmiðar geti fært sönnur á fullyrðingar sínar en hlaupi ekki útundan sér í hömlulausum upphrópunum sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum. Menn verða að hafa vaðið fyrir neðan sig. Þannig tryggjum við að hinir ömurlegu atburðir haustsins muni aldrei endurtaka sig.

Karl Wernersson er stjórnarformaður Milestone og fyrrverandi stjórnarformaður Sjóvár.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert