Vilja friðlýsa Gjástykki

Frá borunum í Gjástykki
Frá borunum í Gjástykki mbl.is

Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi, SUNN, vilja að Gjástykki í Þingeyjarsýslu verði verndað fyrir hvers konar raski. SUNN lýsa andstöðu við rannsóknarboranir í Gjástykki sem nú eru í matsferli vegna umhverfisáhrifa og hvetja umhverfisráðherra til að hefja undirbúning að friðlýsingu Gjástykkis.

SUNN segja að Gjástykki, ásamt svæðinu í kringum Leirhnjúk vestan Kröflu, sé sennilega það svæði í heiminum á þurru landi sem best sýnir hvernig landreksflekarnir færast í sundur. Landrekskenningin hafi sannast þar fyrir augum okkar á 8. og 9. áratug síðustu aldar. Á þessum slóðum séu aðstæður til fræðslu og náttúruupplifunar sem hvergi gefist annars staðar og í því felist mikil tækifæri, bæði andleg og efnaleg.

SUNN telja að þegar málefni Gjástykkis eru skoðuð í víðu samhengi sé ljóst að verðmæti svæðisins sé afar mikið og í þeirri orku sem þar kunni að vera tæknilega nýtanleg felist minnstur hluti þeirra verðmæta.

Auðlegð svæðisins sé fólgin í ímynd þess fyrir Ísland, fræðslugildi þess fyrir Ísland og umheiminn og því að þar séu óhemjumiklir möguleikar fyrir útivist og ferðaþjónustu, t.d. í gönguferðum milli Jökulsárgljúfra í Vatnajökulsþjóðgarði og Mývatns. Allt rask, þar með taldar rannsóknarboranir, ógni þessu gildi og rýri ímynd og gæði. Stjórnvöld, þar á meðal sveitarfélög í héraðinu, ættu því að mati SUNN, að berjast fyrir uppbyggingu eldfjallafræðagarðs í Gjástykki og við Leirhnjúk.

SUNN lýsa af þessum ástæðum andstöðu við rannsóknarboranir í Gjástykki sem nú eru í matsferli vegna umhverfisáhrifa. Samtökin segja að það hafi verið mikilvægur áfangi á sínum tíma að hafa fengið í gegn að ekki mætti bora í Gjástykki í rannsóknarskyni nema að undangengnu mati á umhverfisáhrifum. Þess háttar boranir kosti hins vegar sitt og ljóst að virkjunaraðili fari ekki út í þær nema að ætla sér að virkja.

„Við sem viljum vernda Gjástykki viljum ekkert rask þar og teljum að kostnaður við rannsóknarboranir sé óásættanlegur ef þar verður svo aldrei virkjað. Slíkur kostnaður er svo sem aldrei ásættanlegur — en núna er íslenska ríkið stórskuldugt og Landsvirkjun líka. Af sömu ástæðum lýsa SUNN yfir andstöðu við hvers konar breytingar á skipulagi, svo sem aðalskipulagi sveitarfélaga eða skipulagi miðhálendisins, sem heimila orkuvinnslu í Gjástykki,“ segir í yfirlýsingu SUNN.

Samtökin segja friðlýsingu Gjástykkis forsendur þess að gæði svæðisins verði ekki skert. SUNN, beina því til ráðherra umhverfismála að hefjast þegar handa við undirbúning friðlýsingar svo tryggja megi eftir föngum að svæðið verði lyftistöng fyrir Ísland í samræmi við þær einstöku aðstæður sem þar eru fyrir hendi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert