
mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Háskólanám forréttindi ríkra
Bloggađ um fréttina
-
Skarphéđinn GunnarssonNýríka unga kynslóđin kvartar og kveinar
-
Guđný Lárasvikarar
-
Margrét LúthersdóttirÉg á bara ekki til eitt...
-
Axel Jóhann AxelssonHáskólanám í kreppu
-
Friđrik JónssonEkki hćgt!
-
Jakobína Ingunn ÓlafsdóttirAuđvitađ verđur Ísland forréttindasamfélag
-
Guđmundur BjörnHvađ er ađ vera ríkur?
-
Jón Örn ArnarsonGáfnavísitölur?
-
Sigrún JónaFlestallir hafa lćkkađ í launum og líka tekiđ á
-
Haraldur HaraldssonHáskólanám forréttindi ríkra/er ekki visntri stórn
-
Lísa Björk IngólfsdóttirEf háskólanemar fćru á bćtur....
„Viđ fáum fjölda kvartana frá nemum sem nú eru ađ vakna upp viđ vondan draum. Okkur er ćtlađ ađ draga fram lífiđ á fjárhćđum sem eru ekki nema hluti af ţví sem einstaklingur á atvinnuleysisbótum fćr í hverjum mánuđi. Ég vćnti ţess ađ Umbođsmađur taki máliđ til skođunar ţví ađ óbreyttu stefnir allt í ađ háskólanám verđi forréttindi hinna ríku,“ segir Arnţór Gíslason, stjórnmálafrćđinemi í Háskóla Íslands og fulltrúi í stúdentaráđi.
Arnţór hefur ákveđiđ ađ senda Umbođsmanni Alţingis kvörtun vegna úthlutunarreglna LÍN.
„Framfćrslugrunnur LÍN byggir á of gömlum útreikningum, sem haldast ekki í hendur viđ vísitölu neysluverđs. Ţar af leiđandi duga námslánin ekki fyrir ţeim útgjöldum sem framfćrslugrunnurinn gerir ráđ fyrir. Ég tel ađ LÍN uppfylli ekki hlutverk sitt ađ tryggja öllum tćkifćri til náms án tillits til efnahags,“ segir Arnţór.
Ţann 11. júní sl. samţykkti stjórn LÍN nýjar úthlutunarreglur fyrir skólaáriđ 2009-10. Arnţór telur ađ stjórn LÍN hafi ţá brotiđ rannsóknarreglu Stjórnsýslulaga, en í henni segir ađ stjórnvald skuli sjá til ţess ađ mál sé nćgjanlega upplýst áđur en ákvörđun er tekin í ţví.
Arnţór segir ađ viđ ţessa ákvörđun hafi LÍN stuđst viđ upplýsingar um tekjur tćplega tvö ţúsund einstaklinga frá árinu 2006. Áriđ 2008 hafi yfir 10.000 námsmenn hins vegar veriđ međ opiđ skuldabréf hjá LÍN og sjóđurinn ţví međ nýrri upplýsingar en stuđst var viđ.
„Ef Lánasjóđur Íslenskra námsmanna hefur upplýsingar um tekjur allra námsmanna frá síđasta ári en notfćrir sér eldri upplýsingar frá minna úrtaki viđ útreikninga á tekjuskerđingu námsmanna ţegar kemur ađ framfćrslugrunninum, ţá er ţađ brot á rannsóknarreglu Stjórnsýslulaga ađ mínu mati,“ segir Arnţór Gíslason.
„Framfćrslugrunnur LÍN gerir ekki ráđ fyrir neinni hćkkun á ársútgjöldum einstaklinga ţrátt fyrir ađ vístala neysluverđs hafi á tímabilinu 1. maí 2008 til 1. maí 2009 hćkkađ um 11.60%,“ segir Arnţór.
Hann segir óhćtt ađ fullyrđa ađ miklar breytingar hafi orđiđ á tekjum námsmanna á umrćddu tímabili. Viđ versnandi efnahagsástand á Íslandi hafi námsmenn auk ţess glímt viđ stóraukiđ atvinnuleysi og í sumar hafi menntamálaráđherra komiđ á sumarönnum í Háskóla Íslands vegna atvinnuleysis međal námsmanna.
Til baka








Senda inn efni



