

Jóhanna Sigurðardóttir hafði framsögu á opnum fundi Samfylkingarinnar í Reykjavík í kvöld. mbl.is/Golli
Niðurskurður er óhjákvæmilegur
Bloggað um fréttina
-
Haukur GunnarssonErfitt fyrir VG sem vill bara eyða
-
Halldór JóhannssonNú verður svo sannarlega..
-
Benedikt V. WarénNýr kúrs hjá Jóhönnu....?
-
Jakobína Ingunn ÓlafsdóttirMjög skrítið þetta með gjaldeyrisvaraforðann
-
Þórarinn Þ GíslasonNÚ HARÐNAR Á DALNUM OG MARGIR MUNU LIGGJA Í VALNUM
-
Ólafur GíslasonGefa út ríkisskuldabréf og prenta krónur, ekki
-
Árelíus Örn ÞórðarsonOkkur er stjórnað hér með forsjárhyggju og höftum
-
Júlíus BjörnssonBrenna Brenna
-
Andri Geir Arinbjarnarson... en niðurskurðarhraðinn er í okkar valdi
-
Lúðvík LúðvíkssonAðskilnaður ríkis frá kirkju?
-
S Kristján IngimarssonJá en...
-
A.L.FBara ein setning
-
Sveinbjörn Ragnar ÁrnasonÞví mun Ögmundur afsala sér biðlaunum?
-
Jóhannes Frank JóhannessonAð mála dökkar myndir
-
Ómar Bjarki SmárasonNánara samstarf við Norðmenn
-
Ragnar GRannveig Rist sem forsætisráðherra
-
Jón LárussonEr ekki kominn tími til að fara að gera eitthvað
-
Axel Jóhann AxelssonJóhanna málar skrattann á vegginn
-
Jón Baldur LorangeSáttabrúin sprengt í loft upp
-
Óli Jóhann KristjánssonÞraungsýni og útbrunið
-
Haraldur HaraldssonNiðurskurður er óhjákvæmilegur/Hótanir um að gera
-
Ómar RagnarssonHvað sagði Göran Persson?
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á opnum fundi Samfylkingarinnar í kvöld, að Íslendingar yrðu að fara í niðurskurð á ríkisútgjöldum og hækkun á sköttum óháð því hvort haldið yrði áfram samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Jóhanna sagði að Íslendingar gætu kvatt Alþjóðagjaldeyrissjóðinn strax á morgun en vandi ríkissjóðs myndi ekki leysast við það. Til að bæta stöðu efnahagsmála þyrfti að fá lánsfé frá AGS og nágrannaþjóðum til að byggja upp gjaldeyrisforðann. Sú aðgerð stuðlaði að því að hægt væri að afnema gjaldeyrishöft og lækka stýrivexti.
Jóhanna sagði að ríkissjóður stæði frammi fyrir því að skera þyrfti niður ríkisútgjöld um 200 milljarða. Skorið yrði niður um 100 milljarða á næsta ári. Vaxtagreiðslur ríkissjóð næmu um 100 milljörðum. Þetta væru svimandi háar upphæðir.
Jóhanna sagði eðlilegt að menn spyrðu hvernig þessar skuldir hefðu orðið til. Hún sagði að í fyrsta lagi hefði ríkissjóður verið rekinn með miklum halla í ár og á síðasta ári. Í öðru lagi þyrfti ríkissjóður að leggja 300 milljónir í fjármálafyrirtækin. Samkomulag væri að takast um að kröfuhafar tækju við Kaupþingi og Íslandsbanka og því stæðu vonir til að þessi upphæð yrði lægri. Í þriðja lagi þyrfti ríkissjóður að taka um 330 milljarða lán til að styrkja gjaldeyrisforðann. Í fjórða lagi hefði ríkissjóður þurft að taka á sig um 300 milljarða vegna tapaðra lána Seðlabankans. Í fjórða lagi hefðu skuldir hækkað vegna falls gengis krónunnar.
Jóhanna sagði að inni í þessum tölur væru ekki skuldir vegna Icesave. Þær skuldir væru á bilinu 300-750 milljarðar.
Til baka








Senda inn efni

