Segir úrskurð um Suðvesturlínu vera lögmætan

Frá framkvæmdum við fyrirhugað álver í Helguvík. Suðvesturlína á m.a. …
Frá framkvæmdum við fyrirhugað álver í Helguvík. Suðvesturlína á m.a. að flytja rafmagn þangað.

Umverfisráðuneytið vísar á bug fullyrðingum um að Svandis Svavarsdóttir, umhverfisráðherra hafi brotið lög með úrskurði sínum um Suðvesturlínu. Svandís úrskurðaði nýlega, að Skipulagsstofnun ætti að fjalla um hvort fram skuli fara sameiginlegt mat á Suðvesturlínu, tengdum virkjunum og öðrum framkvæmdum.

Ráðuneytið segir, að fullyrðingar þess efnis að úrskurðurinn sé ólögmætur vegna þess að málshraðareglur hafi verið brotnar eigi ekki við rök að styðjast. Samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum sé frestur ráðherra til að úrskurða vegna mats á umhverfisáhrifum tveir mánuðir frá því að kærufrestur rennur út. Í dómaframkvæmd og samkvæmt fræðikenningum hafi það eitt og sér ekki verið talið valda ógildi stjórnvaldsákvarðana þótt farið hafi verið fram úr lögbundnum afgreiðslufrestum.

Þá tekur ráðuneytið fram, að ástæður fyrir töf á afgreiðslu ráðuneytisins í þessu máli voru vegna umfangs og eðli málsins sem krafðist þess að afla þurfti umsagna og álita víða.

„Umhverfisráðuneytið tekur undir þær ábendingar að málshraði sé oft og tíðum ekki í samræmi við lögbundna fresti. Það skal tekið fram að ráðuneytið hefur nú til skoðunar hvort ástæða sé til að lengja úrskurðarfresti vegna laga um mat á umhverfisáhrifum með hliðsjón af eðli þeirra mála og þeim kröfum sem gerðar eru til málsmeðferðar vegna slíkra mála.

Því hefur verið haldið fram að umhverfisráðherra hafi brotið stjórnsýslulög með því að gefa ekki Norðuráli kost á gæta hagsmuna félagsins þegar úrskurður var felldur um Suðvesturlínu. Úrskurður ráðherra fjallaði um framkvæmd Landsnets vegna Suðvesturlínu og í málinu er það álitaefni hvort meta eigi umrædda framkvæmd með hugsanlegum virkjanakostum á svæðinu. Hins vegar var í máli þessu ekki til úrlausnar að meta umhverfisáhrif álversins í Helguvík með Suðvesturlínu. Í því ljósi taldi ráðuneytið Norðurál ekki vera aðila að málinu og því ekki skylt að veita fyrirtækinu andmælarétt, skv. 13. grein stjórnsýslulaga.

Varðandi þá fullyrðingu að kærufrestur hafi verið runninn út þegar kæra barst umhverfisráðuneytinu er rétt að taka fram að samkvæmt 27. grein stjórnsýslulaga telst kæra m.a. nægilega snemma fram komin ef hún berst ráðuneytinu áður en fresturinn er liðinn," segir í tilkynningu ráðuneytisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert