Gunnari boðinn starfslokasamningur

Sr. Gunnar Björnsson.
Sr. Gunnar Björnsson.

Biskup Íslands hefur boðið sr. Gunnari Björnssyni starfslokasamning kjósi hann að láta af störfum nú þegar. Fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins, að í bréfi, sem biskupsembættið sendi Gunnari, séu honum boðin laun út skipunartímann, í 31 mánuð, auk lögmannskostnaðar. Samtals sé um að ræða  rúmar 20 milljónir króna.

Í bréfinu kemur fram, að Gunnari hafi fengið þetta boð í lok september en þá hafnað því. Í kjölfarið ákvað biskup að færa sr. Gunnar til í starfi frá Selfossi í embætti sérþjónustuprests.  Boðið um starfslokasamning mun þó standa enn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert