[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  6.2.2010
2 16 20 30 33 14
Jóker
5 4 6 0 5  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Lækjarvað, 110 Reykjavík Lækjarvað Reykjavík
Álftröð, 200 Kópavogur Álftröð Kópavogur
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Tómasarhagi, 107 Reykjavík Tómasarhagi Reykjavík
Ólafsgeisli, 113 Reykjavík Ólafsgeisli Reykjavík
Sumarhús Hallkelshólar, 801 Selfoss (dreifbýli) Sumarhús Hallkelshólar Selfoss (dreifbýli)
Kirkjuvellir, 220 Hafnarfjörður Kirkjuvellir Hafnarfjörður
Leynir Kaldakinn Lóð, 801 Selfoss (dreifbýli) Leynir Kaldakinn Lóð Selfoss (dreifbýli)
Vesturgata, 101 Reykjavík Vesturgata Reykjavík
Hringbraut, 107 Reykjavík Hringbraut Reykjavík
Griðastaður - Í Barnahúsi Sólheimum 17.

Griðastaður - Í Barnahúsi Sólheimum 17. Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Innlent | Morgunblaðið | 6.11.2009 | 05:30

Beðið um að kunnáttumaður komi í Héraðsdóminn

„Það sem skiptir máli er hvernig að skýrslutökunni er staðið, en ekki hvar hún fer fram,“ segir Helgi I. Jónsson, dómstjóri í Héraðsdómi Reykjavíkur, spurður um gagnrýni sem fram kom hjá Braga Guðbrandssyni, forstjóra Barnaverndarstofu, í frétt í blaðinu í gær.

Bragi segir í viðtalinu að það sé sitt mat að útilokað hefði verið að ná fram þeim upplýsingum frá barninu sem komu fram í gegnum tjáningu þess án þess að fyrir hendi hefði verið kunnátta og leikni þeirra sérfræðinga sem starfa í Barnahúsi og hins vegar aðstæður og umhverfi sem þar er. Þessi niðurstaða hefði aldrei náðst í dómhúsi þó svo að þar sé séraðstaða.

 

Helgi I. Jónsson segir það reglu í Héraðsdómi Reykjavíkur að þegar um svo ungt barn er að ræða eins og í ofangreindu máli sé haft samband við Barnahús og beðið um að kunnáttumaður komi í héraðsdóm til að taka skýrslu af því. „Skal fullyrt að þær upplýsingar, sem náðust fram með umræddri yfirheyrslu í Barnahúsi, hefðu fengist við yfirheyrslu í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þannig er því harðlega mótmælt að börn, sem búa í Reykjavík, sitji ekki við sama borð og önnur.“

Helgi segir að í dómsniðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness í þessu tiltekna máli sé stuðst við ýmislegt annað en það sem fram kom við yfirheyrsluna í Barnahúsi.

Nánar um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

 

 

 

 

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag