

Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, segir að fyrirspurn menntamálaráðherra verði svarað sem fyrst. mbl.is/Sverrir
Segist ekki hafa notað greiðslukort KSÍ vísvitandi
Bloggað um fréttina
-
Sveinn hinn UngiFór á stripp-búllu, hvað með það?
Fjármálastjóri Knattspyrnusambands Íslands notaði ekki greiðslukort sambandsins vísvitandi þegar hann heimsótti næturklúbb í Sviss fyrir fjórum árum, og endaði með 67.000 franka reikning. Þetta segir Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, og bætir við að sambandið hafi tekið skýringar fjármálastjórans gildar.
„Það voru engar undirskriftir hans á þeim sneplum sem við kölluðum eftir til að fá frá kreditkortafyrirtækinu,“ segir Geir í samtali við mbl.is og bætir við að Pálmi Jónsson, fjármálastjóri KSÍ, hafi orðið fyrir barðinu á skipulagðri glæpastarfsemi í Zürich árið 2005. Greiðslukort Pálma hafi því verið notuð í heimildarleysi.
Pálmi sagði í Morgunblaðinu á laugardag að fjórir
menn hafi játað að hafa misnotað kreditkort hans á næturklúbbi í Sviss,
hann hafi fengið endurgreiðslu og því telji hann að mannorð sitt hafi
verið hreinsað.
Menntamálaráðherra hefur farið fram á að forsvarsmenn KSÍ gefi fullnægjandi skýringar vegna heimsóknar fjármálastjórans á næturklúbbinn. Erindið verður sent síðar í dag.
„Við munum vitanlega svara ráðherra og fara yfir þetta mál,“ segir Geir.
Til baka








Senda inn efni

