[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Grundarstígur, 101 Reykjavík Grundarstígur Reykjavík
Holtsgata, 101 Reykjavík Holtsgata Reykjavík
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Nýbýlavegur, 200 Kópavogur Nýbýlavegur Kópavogur
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Vesturtún, 225 Álftanes Vesturtún Álftanes
Eyrarvegur, 600 Akureyri Eyrarvegur Akureyri
Frá fundi í september þar sem fjallað var um fyrirhugaðan fjárfestingarsjóð.

Frá fundi í september þar sem fjallað var um fyrirhugaðan fjárfestingarsjóð. mbl.is/Golli

Innlent | mbl.is | 11.11.2009 | 17:37

Ákveðið að stofna Framtakssjóð Íslands

Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, skýrði frá því á ráðstefnu um fjárfestingar í dag, að ákveðið hafi verið að halda stofnfund Framtakssjóðs Íslands  24. nóvember.

Sjóðurinn hefur verið í undirbúningi á vegum Landssamtaka lífeyrissjóða um nokkra hríð og hefur verið leitað eftir fjárfestingaloforðum að fjárhæð 75 milljarðar króna, sem verða innkölluð á árunum 2010 til 2012. Hrafn sagði, að á þessari stundu sé ekki vitað hversu stór sjóðurinn verður, því lífeyrissjóðirnir hafi ráðrúm til 20. nóvember n.k. að tilkynna um þátttöku sína að sjóðnum og um fjárfestingaloforð.

Hrafn sagði, að á stofnfundinum verði kosin stjórn sjóðsins, sem síðan mun auglýsa eftir framkvæmdastjóra. Hlutverk Framtakssjóðs Íslands verður að taka þátt í og móta fjárhagslega og rekstrarlega endurreisn íslensks atvinnulífs í kjölfar falls fjármálakerfisins.

Sjóðurinn mun fjárfesta í íslenskum fyrirtækjum í öllum atvinnugreinum, einkum þeim fyrirtækjum sem lent hafa í fjárhagserfiðleikum vegna yfirstandandi þrenginga en eiga sér vænlegan rekstrargrundvöll. Fyrirtæki sem afla gjaldeyristekna eða spara gjaldeyri með starfsemi sinni eru sérstaklega áhugaverð í þessu sambandi.

„Ljóst er að staðan í íslensku viðskiptalífi kallar á nýtt fjármagn til að gera fyrirtækjum sem nú eiga við fjárhagslega erfiðleika kleift að komast í gegnum erfiðleikana sem nú steðja að. Þessi breytta staða felur í senn í sér þrýsting um þátttöku lífeyrissjóða í endurreisn fyrirtækja sem með rekstri sínum standa undir iðgjaldagreiðslum til sjóðanna, sem og tækifæri fyrir sjóðina til að eignast hlutdeild í rekstrarárangri marga ágætra fyrirtækja sem skilað gætu ásættanlegri arðsemi til lengri tíma sé rétt haldið á spilunum," sagði Hrafn á ráðstefnunni, sem haldin var á vegum Capacent Glacier. 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær