[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Ljósvallagata, 101 Reykjavík Ljósvallagata Reykjavík
Kópavogsbakki, 200 Kópavogur Kópavogsbakki Kópavogur
Barmahlíð, 105 Reykjavík Barmahlíð Reykjavík
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Lóuhraun, 220 Hafnarfjörður Lóuhraun Hafnarfjörður
Hafnarstræti, 600 Akureyri Hafnarstræti Akureyri
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Össur Skarphéðinsson.

Össur Skarphéðinsson. mbl.is/Kristinn

Innlent | mbl.is | 11.11.2009 | 16:15

Ísland fái aðild að umsóknarsjóði ESB

Til umræðu er nú innan Evrópusambandsins, að Ísland verði sett á lista yfir ríki sem gætu notið stuðnings sjóðs, sem ætlað er að aðstoða svonefnd umsóknarríki, lönd sem sótt hafa um aðild að sambandinu eða eru að undirbúa aðild. 

Þetta kom fram hjá Össuri Skarphéðinssyni, utanríkisráðherra, á Alþingi í dag. Össur sagði, að stuðningur sjóðsins gæti verið í formi sérfræðiaðstoðar eða til funda og ráðstefnuhalds. Einnig gæti verið um að ræða bein fjárframlög til afmarkaðra verkefna en það krefðist mótframlags af hálfu ríkjanna sjálfra.

Össur sagði, að sendimenn hefðu komið frá Brussel til Íslands til að ræða þetta sérstaklega. Hann hefði sjálfur rætt við skrifstofustjóra Olli Rehn, stækkunarstjóra Evrópusambandsins, um þetta.

Ráðherrann var að svara fyrirspurn frá Vigdísi Hauksdóttur, þingmanni Framsóknarflokks, sem vildi fá upplýsingar um hvort Íslandi stæðu til boða lán og styrkir frá Evrópusambandinu í tengslum við umsóknarferlið.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, vísaði  til viðtals sem Stöð 2 átti við Össur í vikunni þar sem hann sagðist hafa upplýsingar um að allskonar sjóðir og styrkir myndu „dekka" kostnað við aðildarumsóknina að mestu leyti. Össur sagði að allir ættu sína erfiðu daga, þetta hefði verið vitlaust svar í sjónvarpinu og upplýsingarnar rangar.

Ásmundur Einar Daðason, þingmaður VG, notaði tækifærið til að lýsa því yfir að umsóknarferlið væri ekki í hans umboði. Sagði hann að skoðanakannanir sýndu að innan við þriðjungur þjóðarinnar styddi aðildarumsóknina, ekki væri meirihluti fyrir slíku á þingi og því eðlilegast að draga umsóknina til baka. Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, benti á að ályktun um umsókn að ESB hefði verið samþykkt á þinginu í sumar.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær