[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Grundarstígur, 101 Reykjavík Grundarstígur Reykjavík
Holtsgata, 101 Reykjavík Holtsgata Reykjavík
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Nýbýlavegur, 200 Kópavogur Nýbýlavegur Kópavogur
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Vesturtún, 225 Álftanes Vesturtún Álftanes
Eyrarvegur, 600 Akureyri Eyrarvegur Akureyri
Frá upphafi þjóðfundarins í morgun.

Frá upphafi þjóðfundarins í morgun. mbl.is/Kristinn

Innlent | mbl.is | 14.11.2009 | 09:38

Þjóðfundur hafinn í Laugardalshöll

„Það eru allir mjög vongóðir og bjartsýnir. Við höfum það á tilfinningunni að væntingar fólks séu afskaplega jákvæðar. Allir ætli að leggjast á eitt að framleiða gífurlega mörg þúsund billjón megavött af jákvæðri orku,“ segir Maríanna Friðjónsdóttir „fjölmiðlamaur“ um þjóðfundinn sem er hafinn í Laugardalshöll.

„Núna er allt að verða pakkfullt,“ sagði Maríanna í morgun þegar unnið var að því að skrá fólk inn á fundinn, en um 1500 hafa fengið boð um að mæta á fundinn. „Ég veit ekki hvort það stefnir í eitthvað lúxusvandamál hérna,“ sagði Maríanna hlæjandi

Rétt fyrir kl. 10 var umferðarteppa við höllina og eru gestir beðnir um að sýna þolinmæði.

Um 1500 manns fengu boð á þjóðfundinn.

Um 1500 manns fengu boð á þjóðfundinn. mbl.is/Kristinn

Fram hefur komið að fundinum er ekki ætlað að taka afstöðu til einstakra dægurmála. Verkefni fundarins er að taka afstöðu til þess hvernig samfélag Íslendingar vilji byggja í framtíðinni.

Fulltrúar á fundinum koma úr tveimur áttum, annars vegar úr 1.200 manna slembiúrtaki úr þjóðskrá. Úrtakið er þannig valið að því er ætlað að endurspegla þjóðina. Þar verður því jöfn skipting kynjanna, fólk á öllum aldri og alls staðar af landinu. Hins vegar hefur 300 fulltrúum félaga, samtaka og stofnana verið boðið að senda fulltrúa á fundinn.

 Íslenskir og erlendir blaðamenn eru á meðal gesta, t.a.m. blaðamaður frá The Economist.

Hægt er að fylgjast með þjóðfundinum í beinni útsendingu á netinu á vefslóðinni www.thjodfundur2009.is. Þar er að finna allar upplýsingar um fundinn. Einnig er hægt að fylgjast með fundinum á Facebook og Twitter-örbloggsíðunni.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær