
Landspítalinn í Fossvogi.
Enn í aðgerð eftir slys í nótt
Maðurinn sem féll ofan í húsgrunn og fékk steypustyrktarjárn í gegnum líkamann í nótt er enn í aðgerð. Hjá Landspítalanum fást ekki upplýsingar um líðan mannsins eða hvernig aðgerðin gengur, en ljóst er að hann er í lífshættu.
Ekki er fregna að vænta af líðan hans fyrr en seinni partinn.
Maðurinn féll ofan í grunn sumarbústaðar við Efra Langholt í Hrunamannahreppi um klukkan tvö í nótt. Lenti hann á steypustyrktarjárni og stungust sjö slík í líkama hans. Hann var fluttur með þyrlu til Reykjavíkur í nótt en bæði lögregla og björgunarsveitarmenn aðstoðuðu við að losa hann og koma honum í þyrluna.
Til baka








Senda inn efni

