[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Grundarstígur, 101 Reykjavík Grundarstígur Reykjavík
Holtsgata, 101 Reykjavík Holtsgata Reykjavík
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Nýbýlavegur, 200 Kópavogur Nýbýlavegur Kópavogur
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Vesturtún, 225 Álftanes Vesturtún Álftanes
Eyrarvegur, 600 Akureyri Eyrarvegur Akureyri
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra.

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra.

Innlent | mbl.is | 22.11.2009 | 22:18

Stefnumót ungs fólks og stjórnmálamanna

Landssamband æskulýðsfélaga og Æskulýðsvettvangurinn efna til stefnumóts ungs fólks og stjórnmálamanna í Gyllta sal Hótels Borgar á morgun, mánudag, klukkan 16-18. Þórólfur Þórlindsson, prófessor við Háskóla Íslands, og Hreiðar Már Árnason, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra framhaldsskólanema halda stutt erindi á stefnumótinu. Menntamálaráðherra hyggst ávarpa fundinn og tekur þátt í umræðum að erindum loknum.

Á stefnumótinu gefst ungu fólki tækifæri til að koma skoðunum og málefnum sínum á framfæri við menntamálaráðherra og aðra stjórnmálamenn. Auk þess fá stjórnmálamenn tækifæri til að ræða málefni ungs fólks. Æskulýðsfélögum, Æskulýðsráði, ráðherrum, þingmönnum, öllu ungu fólki og öllum áhugasömum um málefni ungs fólks er boðið á stefnumótið, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Landssambandi æskulýðsfélaga og Æskulýðsvettvangnum.

Í fréttatilkynningunni segir ennfremur að niðurstöður erlendra rannsókna sýni að þegar efnahagsþrengingar gangi yfir sé aldurshópurinn 16-25 ára í hvað mestri hættu. „Ef ekkert er að gert til að tryggja þátttöku þessa aldurshóps í samfélaginu er hætta á að þessi kynslóð týnist í framtíðinni. Einnig er hætt við að langvarandi atvinnuleysi og geðræn vandamál fari vaxandi meðal þessa hóps. Í því ljósi er afar mikilvægt að stjórnvöld grípi til aðgerða og setji málefni ungs fólks í forgang svo að koma megi í veg fyrir alvarlegar afleiðingar.“ 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær