Teknir við innbrot í tölvubúð

mbl.is/Július

Tveir ungir menn, fæddir 1984 og 1988, voru teknir við innbrot í tölvuverslunina Kísildalinn við Álfheima í nótt. Árvökull sjónarvottur gerði lögreglu viðvart kl. 04:28 um að menn væru að reyna að komast inn í búðina. Lögreglan fór þegar á staðinn og náði innbrotsþjófunum.

Mennirnir eru nú í haldi lögreglunnar.  Að öðru leyti var nóttin róleg hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert