Saka Haga um samkeppnisbrot
Samkeppniseftirlitinu hefur borist kvörtun um að Hagar selji vörur undir innkaupsverði í verslunum sínum. Í lok árs 2008 lagði Samkeppniseftirlitið 315 milljóna króna stjórnvaldssekt á Haga fyrir alvarlegt brot á samkeppnislögum.
Í ákvörðuninni er komist að þeirri niðurstöðu að Hagar hafi misnotað markaðsráðandi stöðu á matvörumarkaði með því að selja tilteknar vörur undir kostnaðarverði. Áfrýjunarnefnd staðfesti niðurstöðuna, en Hagar hafa stefnt samkeppnisyfirvöldum fyrir héraðsdóm vegna málsins.
Tilefni rannsóknar stofnunarinnar var undirverðlagning á árunum 2005 og 2006, en þá hóf Krónan markaðssókn. Í kjölfarið hófst verðstríð sem birtist m.a. í því að um tíma var mjólkurlítrinn seldur á eina krónu.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, staðfestir að nýverið hefði borist kvörtun til stofnunarinnar þar sem því væri haldið fram að Hagar seldu enn vörur undir kostnaðarverði. Hann sagði að Samkeppniseftirlitið væri að taka afstöðu til meðferðar á þessari kvörtun. Sjá nánari umfjöllun um málið í Morgunblaðinu í dag.
Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.
Til baka








Senda inn efni



