Eldsneyti einkabíls hækkar um 60 þúsund krónur á ári
Bloggað um fréttina
-
Halldór JónassonHvernig væri að því væri komið i gegn
-
Óli Jóhann KristjánssonÞetta eru TRÉHAUSAR
-
A.L.FHærra bensínverð-HÆRRA vöruverð
-
Einar Ben ÞorsteinssonFávitans vörugjöld
-
Sif Jónsdóttir165.500 manns vinna á íslandi
-
Haugurinn bloggarFjögur orð sem spara eldsneyti - í dag
-
Haraldur HaraldssonBensínið kostar 60.000 meira/Vinstri menn
-
Einhver ÁgústEr það endilega slæmt?
-
Axel Jóhann AxelssonÓtrúlegt skattabrjálæði
-
Morten LangeGott mál að hækka bensín ofl. Minnkið tenginguna
-
Reynir W LordSkjaldborg sett á heimilið, kannist þið við þessi
-
Sædís Ósk HarðardóttirEnn ráðist á fjölskyldufólk.
-
Sigurður SveinssonRíkisstjórn lítilmagnans.
-
GunniSAllt á niðurleið
Hærri skattar á eldsneyti sem til stendur að leggja á nú um áramótin þýða að rekstur einkabílsins kostar fjölskylduna 60 þúsund krónum meira en fyrir ári.
Sé tekið tillit til tekjuskatta þarf hver fjölskylda að afla 100 þúsund krónum meira í ráðstöfunartekjur til að geta haldið sínu striki hvað varðar bílnotkun, sem mörgum er ómissandi.
Auknar álögur á bíla og eldsneyti sem að óbreyttu koma til framkvæmda um áramótin eru margþætt breyta. Bifreiðagjöld eiga að hækka um 10%, bensín- og olíugjöld um 5% og kolefnisskattur verður tæpar þrjár krónur.
Virðisaukaskattur í hæsta þrepi fer upp í 25% og að þessu samanlögðu hækkar verð hvers lítra um átta krónur sem eykur útgjöld hvers bíleiganda um allt að 18 þúsund á ári, að mati Félags íslenskra bifreiðaeigenda.
Í heild eru áhrifin af hærra eldsneytisverði þau, að mati FÍB, að öll viðmið í vísitölum hækka sem aftur hækkar lánabyrði og eykur verðbólgu. Þetta gerist á sama tíma og framlög til vegagerðar eru skorin niður en eldsneytis- og bifreiðagjöld hafa gjarnan staðið undir framkvæmdum á sviði samgöngumála.
Sjá nánari umfjöllun um málið í Morgunblaðinu í dag.
Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.
Til baka







Senda inn efni



