Íslendingum hefur ekki verið hótað
Bloggað um fréttina
-
Pjetur StefánssonÓmerkingar í trúnaðarstörfum
-
Sveinn hinn UngiUmmæli Steingríms Joð benda eindregið til þess að
-
Benedikta EMarklaust þvaður Steingríms J.Sigfússonar
-
Jón SnæbjörnssonEkkert að marka Steingrím J
-
Freyr Hólm KetilssonMisskilningur a la Georg Bjarnfreðarson
-
Jón Örn ArnarsonHvert stefnir samfélagið?
-
FrizziFretnagliSkallagrímur margsaga í málinu
-
Skúli VíkingssonHótanir sem má ekki kalla hótanir?
-
Þórdís BachmannAð lepja dauðann úr skel
-
Axel Jóhann AxelssonSteingrímur J. margsaga
-
Axel Þór KolbeinssonSigmundur Davíð svaraði Steingrími í gær
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, ítrekaði eftir ríkisstjórnarfund í dag að ekki væri verið að leyna Íslendinga neinu í tengslum við Icesave-samningana. Hins vegar væri ýmislegt, sem komi fram í samtölum manna, sem ekki eigi erindi í ræðustól Alþingis og upplýsingar um slíkt gætu skaðað hagsmuni Íslendinga. Steingrímur aftók aðspurður, að Íslendingum hefði verið hótað í málinu með neinum hætti.
Steingrímur sagði á Alþingi í gær, að flýta verði afgreiðslu Icesave-málsins, bæði af ástæðum sem vel væru
þekktar og einnig af ástæðum sem ekki væri hægt að fara með í ræðustól Alþingis.
Fram kom hjá Steingrími í dag, að stjórnvöld vonuðust til að niðurstaða fáist í Icesave-málinu á Alþingi í vikunni. Sagði hann það slæmt þegar stjórnarandstaða tefði fyrir lýðræðislega kjörnu þingi eins og gert hefði verið í 2. umræðu um Icesave-frumvarpið.
Sendinefnd frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum er komin til landsins til að fara yfir forsendur samkomulag sjóðsins og Íslands. Verður meðal annars farið yfir forsendur fjárlaga og þróun þjóðhagsforsendna.
Til baka








Senda inn efni


