Tveir stungu af

Tveir menn voru handteknir á Selfossi í nótt, grunaðir um ölvun við akstur. Báðir höfðu lent í óhappi en yfirgefið vettvang og voru ekki akandi þegar þeir náðust.

Annar maðurinn ók á kerru sem rann á kyrrstæðan bíl en hinn beint á bíl. Báðir bílarnir sem ekið var á voru mannlausir. Ekki varð mikið tjón af þessu háttarlagi.

Báðir mennirnir gistu fangageymslur lögreglunnar og verða yfirheyrðir í dag þegar þeir verða taldir í standi til þess.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert