Brunarannsókn á frumstigi
Bloggað um fréttina
-
ÞJÓÐARSÁLINSlæmt að sitja uppi með altaristöfluna
-
Sigurbjörg EiríksdóttirHræðilegt að sjá þessar myndir.
Lögreglan rannsakar nú hvað olli því að Krýsuvíkurkirkja brann til kaldra kola í nótt. Skv. upplýsingum frá lögreglu er rannsóknin á frumstigi. Engar upplýsingar hafa borist frá sjónarvottum.
Slökkvilið Grindavíkur var kallað út laust eftir klukkan tvö í nótt, Þegar komið var á vettvang var kirkjan fallin. Slökkviliðið slökkti í því sem hægt var að slökkva.
Ásmundur Jónsson, slökkviliðsstjóri í Grindavík, sagði að útkallið hafi komið frá Neyðarlínunni kl. 2:04 og að einn bíll hafi verið sendur á vettvang. Leiðin úr Grindavík í Krýsuvík er ekki auðfarin á þessum árstíma og var slökkviliðið um hálftíma að Krýsuvíkurkirkju.
Krýsuvíkurkirkja var byggð árið 1857, fyrir 153 árum, og endurbyggð og
endurvígð árið 1964. Kirkjan var í vörslu þjóðminjavarðar.
Til baka








Senda inn efni




