Eldur í hesthúsi í Víðidal

Á útreiðum í Víðidal. Myndin tengist ekki efni fréttarinnar beint.
Á útreiðum í Víðidal. Myndin tengist ekki efni fréttarinnar beint. Kristinn Ingvarsson

Eldur kom upp í hesthúsi í Víðidal á fimmta tímanum í nótt. Eldurinn kviknaði að sögn lögreglu í bíl sem lagt hafði verið við hlið hesthússins og barst frá honum í veggi hússins.  Vel gekk að slökkva eldinn og unnt var að ná öllum hrossunum, 14 talsins, út úr húsinu ómeiddum.

Ekki er vitað hvað olli eldsupptökum í bílnum og ekki liggur heldur fyrir hversu miklar skemmdir urðu á hesthúsinu en rannsókn stendur enn yfir á staðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert