[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Nökkvavogur, 104 Reykjavík Nökkvavogur Reykjavík
Stuðlasel, 109 Reykjavík Stuðlasel Reykjavík
Stuðlasel, 109 Reykjavík Stuðlasel Reykjavík
Sólvallagata, 101 Reykjavík Sólvallagata Reykjavík
Fálkagata, 107 Reykjavík Fálkagata Reykjavík
Grenimelur, 107 Reykjavík Grenimelur Reykjavík
Hryggjarsel, 109 Reykjavík Hryggjarsel Reykjavík
Ólafsgeisli, 113 Reykjavík Ólafsgeisli Reykjavík
Vallarhús, 112 Reykjavík Vallarhús Reykjavík
Sumarhúsalóð, 270 Mosfellsbær Sumarhúsalóð Mosfellsbær
Frá slysstað í sumar.

Frá slysstað í sumar. mbl.is/Júlíus

Innlent | mbl.is | 9.2.2010 | 14:34

Braut umferðarlög í neyðarakstri

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 60 þúsund króna sekt fyrir að brot gegn umferðarlögum og reglum um neyðarakstur með því að hafa ekið sjúkrabíl í neyðarakstri gegn rauðu ljósi á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu í sumar. Lenti sjúkrabíllinn í árekstri við annan bíl.

Sjúkrabíllinn var á leið í útkall vegna hjartsláttartruflana í manni vestur á Hagamel.  Útkallið var flokkað sem forgangur tvö sem þýðir að líf sé mögulega í hættu. 

Fram kemur í dómnum að sjúkraflutningamaðurinn hafi ekið með viðeigandi hljóð- og ljósmerkjum vestur Hringbraut á 60 km hraða gegn rauðu ljósi á gatnamótunum. Þar lenti hann í árekstri við annan bíl með þeim afleiðingum að sjúkrabíllinn valt. 

Í niðurstöðu dómsins segir, að manninum hafi borið að sýna sérstaka varúð þegar hann ók yfir gatnamótin.  Hraðinn mátti ekki vera meiri en svo að hann gæti stöðvað tafarlaust fyrir umferð úr þverstæðri átt.  Maðurinn hafi ekið á um 60 km hraða inn á gatnamótin gegn rauðu ljósi, sem hafi verið of mikill hraði.

„Ákærði sýndi því ekki þá varúð sem honum bar að sýna við akstur um gatnamót.  Breytir engu um þess niðurstöðu að ákærði hafði uppi hljóð- og ljósmerki á sjúkrabifreiðinni," segir í niðurstöðu dómsins.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær