Fær ekki að gefa einkaskýrslu
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað kröfu fréttastjóra og fréttamanns Stöðvar 2 um að heimildarmaður þeirra fyrir frétt um fjármagnsflutninga Björgólfs Thors Björgólfssonar, Björgólfs Guðmundssonar og Magnúsar Þorsteinssonar fái að gefa skýrslu einslega fyrir dómara í málinu án þess að nafn hans komi fram.
Þremenningarnir stefndu þeim Gunnari Erni Jónssyni og Óskari Hrafni Þorvaldssyni fyrir meiðyrði. Í úrskurði dómsins er haft eftir lögmanni blaðamannanna, að ummælin í fréttinni hafi byggst á upplýsingum frá heimildarmanni. Blaðamennirnir eigi afar brýna hagsmuni af því að heimildarmaðurinn gefi skýrslu um málsatvik fyrir dóminum, en hann muni ekki gefa skýrslu fyrir dóminum, nema slík skýrslugjöf fari fram einslega fyrir dómara og þá án þess að nafn hans verði tilgreint í dómi eða gefið upp öðrum en dómara og votti. Telji heimildarmaðurinn að fjárhagslegum hagsmunum hans, félagslegum sem og hagsmunum sem tengist atvinnufrelsi verði stefnt í hættu ef hann gefi skýrslu í heyranda hljóði fyrir dóminum.
Lögmenn þeirra, sem höfðuðu málin gegn blaðamönnunum, töldu þessa kröfu ekki eiga sér neina stoð í lögum en hún brjóti hins vegar gegn mörgum ákvæðum íslenskra laga, sem og gegn ákvæðum mannréttindasáttmála Evrópu um réttláta málsmeðferð.
Dómurinn tók undir þau sjónarmið og sagði, að krafan fæli í raun í sér útilokun annarra en blaðamannanna sjálfra til að spyrja vitni nokkurs sem máli geti skipt. Ef fallist yrði á kröfuna væri aðilum máls þessa verulega mismunað og þannig brotið gegn rétti Björgólfsfeðga og Magnúsar til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi.
Til baka








Senda inn efni



