[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Skipholt, 105 Reykjavík Skipholt Reykjavík
Kársnesbraut, 200 Kópavogur Kársnesbraut Kópavogur
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Ástún, 200 Kópavogur Ástún Kópavogur
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Sólbaðsstofa, 110 Reykjavík Sólbaðsstofa Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Málverk Jóhannesar S. Kjarval af blómvendi var slegið á 1.500.000 krónur.

Málverk Jóhannesar S. Kjarval af blómvendi var slegið á 1.500.000 krónur.

Innlent | mbl.is | 9.2.2010 | 10:03

Kjarval seldist á 1,5 milljónir

Málverk eftir Jóhannes S. Kjarval var slegið á 1.500.000 kr. á uppboði listmunasölunnar Gallerís Foldar í gærkvöldi. Uppboðið gekk vonum framar, að mati Jóhanns Ágústs Hansen listmunasala og uppboðshaldara. 

Hæsta boð var í málverk Jóhannesar S. Kjarval af blómvendi og var það slegið fyrir 1.500 þúsund. Með gjöldum þarf kaupandinn að reiða af hendi rúmlega 1,8 milljónir fyrir verkið. Kaupandinn er útlendur en Jóhann taldi allt eins líklegt að málverkið verði áfram hér á landi.

Jóhann Ágúst Hansen listmunasali og uppboðshaldari í Gallerí Fold.

Jóhann Ágúst Hansen listmunasali og uppboðshaldari í Gallerí Fold. frikki

Jóhann sagði að þetta málverk hafi verið selt árið 2005 og var það þá slegið á 690 þúsund krónur. Hann sagði að verðgildi myndarinnar hafi því aukist um 117% á þessum árum. 

Jóhann sagði að uppboðssalurinn við Rauðarárstíg hafi verið fullsetinn í gær og 140-150 gestir mættir. Nokkuð gott verð fékkst fyrir listaverkin sem seldust. „Það lítur út fyrir að það sé að hægja á þeirri miklu niðursveiflu sem verið hefur á verði listaverka síðustu tvö árin,“ sagði Jóhann.

Boðin voru upp 100 verk. Jóhann sagði að verk eftir ýmsa starfandi listamenn hafi selst dýrar en fyrir ásett viðmiðunarverð. Hann nefndi t.d. verk eftir Tryggva Ólafsson, Kristján Davíðsson og Kjartan Guðjónsson í því sambandi. 

„Þegar við verðmetum svona verk þá miðum við verð sem gengið hafa í beinni sölu. Við seldum verk eftir alla þessa yfir matsverði. Kannski er það merki um aukið traust á markaðnum. Yngra fólk er líka farið að mæta í auknum mæli á uppboðin,“ sagði Jóhann.

Á uppboðsskránni var uppstoppaður íslenskur fálki sem verðmetinn var á 150 - 200 þúsund krónur. Jóhann sagði að fálkinn hafi ekki selst og verið sleginn inn sem kallað er. Jóhann sagði að um sé að ræða mjög gamlan grip. Hann hafi verið stoppaður upp áður en það var bannað með lögum og engin athugasemd verið gerð.

 

 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag