Opið beinbrot eftir fall

Kona féll af hestbaki við reiðhöllina í Víðidal skömmu fyrir klukkan sex í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hlaut konan opið beinbrot á upphandlegg hægri handar við fallið. Hún var flutt með sjúkrabíl á slysadeild til aðhlynningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert