Geðhjálp gagnrýnir Kastljós

Merki Geðhjálpar
Merki Geðhjálpar

Stjórn Geðhjálpar hefur sent frá sér athugasemd þar sem umfjöllun Kastljóss þann 17. febrúar sl. um meint afbrot geðsjúks manns er harðlega gagnrýnd. Gefið sé í skyn að sjúkdómurinn lægi að baki meintum brotum. Samtökin segjast hvorki leggja mat á hugsanlega sekt eða sakleysi mannsins. Hins vegar leggi þau áherslu á að í umfjöllun um geðsjúkdóma, geðsjúka og hagi þeirra gæti hvorki fordóma né vanþekkingar. Samtökin segjast vilja vekja athygli á þeirri staðreynd að geðsjúkir fremji hvorki fleiri né alvarlegri brot en þeir sem taldir eru heilir á geði.  Athugasemdin í heild sinni er hér fyrir neðan.

„Athugasemd frá stjórn landssamtakanna Geðhjálp

Stjórn landssamtakanna Geðhjálp gagnrýnir harðlega umfjöllun Kastljóss þriðjudaginn 17. febrúar þar sem meint afbrot geðsjúks manns var í fyrirrúmi. Svo mátti skilja að sjúkdómurinn lægi að baki hinum meintu afbrotum, og að ekki væri mark á manninum takandi vegna sama sjúkdóms. Einnig kom fram í umfjölluninni makalaus vanþekking á geðsjúkdómum sem Geðhjálp hlýtur að gera kröfu um að sjáist hvorki né heyrist í þáttum eða fréttum í fjölmiðli allra landsmanna.

Landssamtökin Geðhjálp leggja hvorki mat á hugsanlega sekt eða sakleysi mannsins né réttmæti dóma yfir honum. Landssamtökin leggja hins vegar mikla áherslu á að í umfjöllun um geðsjúkdóma, geðsjúka og hagi þeirra gæti hvorki fordóma né vanþekkingar og lýsa sig reiðubúin til umræðu og upplýsinga  á hvaða vettvangi sem er. Samtökin vilja af þessu tilefni vekja athygli á þeirri staðreynd að geðsjúkir fremja hvorki fleiri né alvarlegri brot en þeir sem taldir eru heilir á geði.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert