Jörð skelfur á ný undir Eyjafjallajökli

rax

Skjálftavirknin undir Eyjafjallajökli tók kipp í morgun  á milli kl. 6:40 og 7:30, þegar 40-50 skjalftar mældust á klukkustund. Í hviðunni náðu nokkrir skjálftar stærðinni   2 stig og yfir.

Stærsti skjálftinn varð síðan í kjölfarið kl 8:12, hann var af stærðinni  2,4 stig. Skjálftarnir mældust á 7-12 km dýpi, norðaustur undir toppgígnum. Að sögn Veðurstofunnar virðist  smáskjálftavirknin nú vera að færast í fyrra horf, líkt og hún var í gær.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert